

Stuðningsráðgjafi óskast – viltu styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs?
Velferðarsvið Reykjavíkurborgar leitar að öflugum og áhugasömum starfsmönnum til að styðja fatlað fólk með fjölþættar stuðningsþarfir sem býr í sjálfstæðri búsetu.
Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem reynir á hæfni í mannlegum samskiptum, sveigjanleika, útsjónarsemi og fagmennsku. Við leitum að fólki sem sýnir frumkvæði og hefur áhuga á að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Um starfið
Meginverkefni er að styðja einstaklinga við að halda heimili og sinna daglegum viðfangsefnum þannig að þeir geti lifað sjálfstæðu og virku lífi á eigin forsendum. Stuðningurinn tekur mið af þörfum og óskum hvers og eins og getur meðal annars falist í aðstoð við heimilishald, daglegar athafnir og þátttöku í samfélaginu. Mikilvægt er að starfsfólk geti brugðist við ólíkum aðstæðum af yfirvegun, virðingu og fagmennsku.
- Styðja einstaklinga við heimilishald og dagleg verkefni.
- Er leiðandi í starfsmannahópnum þegar kemur að því að vinna eftir verklagi og hugmyndafræði starfsstaðar.
- Tekur þátt í að fræða og leiðbeina öðru starfsfólki í samráði við stjórnendur.
- Skipuleggur og ber ábyrgð á framkvæmd einstaklingsáætlana í samráði við forstöðumann og teymisstjóra.
- Hefur yfirsýn yfir þá þjónustu sem þjónustunotendur eru að fá.
- Tekur þátt í teymisvinnu með öðrum starfsmönnum.
- Vinna í samræmi við hugmyndafræði, lög og reglur á sviði þjónustu við fatlað fólk.
- Háskólamenntun á sviði félags-, heilbrigðis- og/eða menntavísinda sem nýtist í starfi.
- Reynsla af starfi með einstaklingum með ólíkar þjónustuþarfir kostur.
- Áhugi á að starfa með fólki og virðing fyrir ólíkum þörfum og aðstæðum.
- Góð samskiptahæfni og færni til að takast á við krefjandi aðstæður.
- Sveigjanleiki, þolinmæði og útsjónarsemi.
- Frumkvæði, jákvæðni og sjálfstæði í vinnubrögðum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
- Umsækjendur þurfa að vera 20 ára eða eldri.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
Reykjavíkurborg býður fjölbreytt starfsmannahlunnindi.
Íslenska












