
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.

Deildarstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Dropaugarstaðir hjúkrunarheimili óska eftir öflugum hjúkrunarfræðing í starf deildarstjóra hjúkrunar.
Droplaugarstaðir er Eden vottað hjúkrunarheimili með áherslu á heimilislegt umhverfi og sjálfsákvörðunarrétt íbúa.
Droplaugarstaðir eru með virkt gæðakerfi og fengu ISO vottun árið 2020 fyrst hjúkrunarheimila á Íslandi. Í stefnu heimilisins eru öryggi, virkni og vellíðan íbúa, starfsfólks og fjölskyldna í öndvegi.
Við leggjum áherslu á metnað í starfi, fagleg vinnubrögð og samvinnu íbúa og starfsfólks.
Íbúar eru 87 á fjórum deildum. Við erum staðsett í hjarta Reykjavíkur og stutt í almenningssamgöngur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulag, stjórnun og umsjón með daglegri starfsemi deildarinnar.
- Ábyrgð á mönnun, vaktaskipulagi og verkefnadreifingu.
- Fagleg forysta og ábyrgð á gæðum hjúkrunar, hjúkrunaráætlunum og skráningu.
- Umsjón með mati á hjúkrunarþörfum íbúa, þar á meðal RAI-mati.
- Ábyrgð á samskiptum og samstarfi við íbúa, aðstandendur og starfsfólk.
- Leiðsögn, fræðsla og þjálfun starfsfólks og nema.
- Þátttaka í almennri og sérhæfðri hjúkrun íbúa eftir þörfum.
- Eftirlit með öryggismálum, atvikaskráningu og eftirfylgni.
- Stuðla að faglegri þróun, góðri liðsheild og stöðugum umbótum í hjúkrunarþjónustu.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Hjúkrunarfræðingur með íslenskt hjúkrunarleyfi
- Íslenskukunnátta á stig C1 í samræmi við samevrópskan tungumálaramma
- Sérnám í stjórnun og /eða öldrunarhjúkrun æskileg
- Reynsla af hjúkrun aldraðra æskileg
- Reynsla af stjórnun æskileg
- Reynsla af teymisvinnu og útdeildingu verkefna æskileg
- Frumkvæði, sjálfstæði vinnubrögð, hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, heiðarleiki og jákvæðni.
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Fríðindi í starfi
- Reykjavíkurkort skv. reglum Reykjavíkurborgar
- Samgöngustyrkur skv. reglum Reykjavíkurborgar
- Líkamsræktarstyrkur skv. reglum Reykjavíkurborgar
Auglýsing birt3. nóvember 2026
Umsóknarfrestur18. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Snorrabraut 58, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiHjúkrunarfræðingurMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (5)

Stuðningsráðgjafi óskast – viltu styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs?
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Stuðningsfulltrúi óskast – viltu styðja fatlað fólk til sjálfstæðs lífs?
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Iðjuþjálfi í endurhæfingarteymi
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Teymisstjóri hjúkrunar Droplaugarstöðum
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið

Hjúkrunarfræðingur Droplaugarstaðir
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarhjúkrunardeildarstjóri - Sléttuvegur
Hrafnista

Hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á erfða- og sameindalæknisfræðideild
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur í Áhættumati persónutrygginga
TM

Viðskiptastjóri í hjúkrunarvörum og heilbrigðislausnum
STOÐ

Hjúkrunarfræðingur á innrennsliseiningu dagdeildar gigtarsjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtlasjúkdóma
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á göngudeild innkirtla og efnaskipta
Landspítali

Hjúkrunarfræðingur á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á bráðalegudeild lyndisraskana
Landspítali