

Hópstjóri á meðferðarheimilið Esju
Vilt þú taka þátt í krefjandi og gefandi starfi með unglingum?
Barna- og fjölskyldustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu hópstjóra á Esju, meðferðarheimili fyrir unglinga. Starfstöð Esju er tímabundið staðsett á Vogi.
Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins. Um er að ræða 100% starf í vaktavinnu.
-
Ábyrgð á vaktstjórn á heimilinu utan hefðbundins vinnutíma eða í fjarveru yfirmanns.
-
Meðferðarvinna, vinna að tómstundastarfi með unglingum og ábyrgð á að einstaklingsmiðuðu skipulagi sé fylgt.
-
Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í meðferð í samvinnu við stjórnendur og fagaðila.
-
Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.
-
Vinna eftir verklagsreglum heimilisins og stefnu stofnunarinnar.
-
Önnur tilfallandi verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
-
BA/BS próf sem nýtist í starfi æskilegt
-
Áhugi og/eða reynsla sem að nýtist í starfi.
-
Reynsla og/eða þekking af gagnreyndum aðferðum í meðferðarvinnu með unglingum er æskileg.
-
Staðgóð þekking og/eða reynsla af notkun áhugahvetjandi samtals og ART er æskileg.
-
Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður
-
Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum.
-
Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð.
-
Sveigjanleiki og þjónustulund.
-
Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.
-
Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli, enskukunnátta æskileg.
-
Gild ökuréttindi.
Íslenska



