
Fjármálastjóri
Fjármálastjóri
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar leitar að öflugum og framsýnum stjórnanda til að leiða skrifstofu fjármála á sviðinu.
Skrifstofa fjármála gegnir lykilhlutverki í að móta, samræma og þróa fjármálastjórnun á sviðinu. Skrifstofan ber ábyrgð á gerð og innleiðingu verkferla á sviði fjármála og tryggir markvissa eftirfylgni með rekstri og fjárhagslegum markmiðum. Einnig styður skrifstofan við innkaup, samningsstjórnun og áhættustýringu þannig að skapað sé öruggt, gagnsætt og traust rekstrarumhverfi.
Skrifstofan veitir stjórnendum og starfsfólki ráðgjöf og stuðning á sviði áætlanagerðar, fjárhags- og verkbókhalds, uppgjörs, innheimtu, innkaupa, samningsstjórnunar, áhættustýringar og innra eftirlits. Undir skrifstofuna heyra tvær deildir, deild áætlana og uppgjörs og deild innkaupa og samningsstjórnunar.
Fjármálastjóri leiðir skrifstofu fjármála og ber ábyrgð á stefnumótun, rekstri, fjármálum, mannauðsmálum og þjónustu skrifstofunnar. Starfið felur í sér að leiða þróun og uppbyggingu starfseminnar, efla samvinnu og stuðla að nýsköpun í verklagi og þjónustu.
Við leitum að einstaklingi með sterka leiðtogahæfileika, faglegan metnað og skýra framtíðarsýn, sem hefur getu til að leiða umfangsmikla fjármálaþjónustu í krefjandi og síbreytilegu starfsumhverfi.
Næsti yfirmaður er sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs.
Starfssvið
- Leiða stefnumótun, áætlanagerð, markmiðasetningu og forgangsröðun verkefna á ábyrgðarsviði skrifstofunnar.
- Tryggja að starfsemi skrifstofunnar sé í samræmi við stefnu, áherslur og markmið umhverfis- og skipulagssviðs.
- Ábyrgð á rekstri, skipulagi og áframhaldandi þróun skrifstofu fjármála.
- Fagleg forysta og ábyrgð á mannauði, fjárhag og daglegri starfsemi skrifstofunnar.
- Leiða þróun og innleiðingu skilvirkra verkferla, stafrænnar þróunar og umbótaverkefna á sviði fjármála.
- Tryggja öflugt innra eftirlit, áhættustýringu og góða stjórnarhætti.
- Ráðgefandi gagnvart stjórnendum sviðsins um fjármál, rekstur og stefnumarkandi ákvarðanir.
- Stýra samskiptum og samstarfi við hagsmunaaðila, ráðgjafa, stofnanir, nefndir og aðrar einingar innan og utan borgarkerfis.
- Fylgja eftir fjárhagsáætlunum, rekstrarniðurstöðum og lykilmælikvörðum og tryggja áreiðanlega upplýsingagjöf til stjórnenda.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
- Árangursrík reynsla af stjórnun og leiðtogastörfum.
- Farsæl reynsla af fjármálastjórnun í krefjandi rekstrarumhverfi.
- Framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfni sem endurspeglast í drifkrafti, frumkvæði og farsælli stjórnunarreynslu.
- Reynsla af stefnumótun, breytingastjórnun, stafrænum umbreytingarverkefnum og uppbyggingu öflugra teyma.
- Mjög góð greiningarhæfni, lausnamiðuð hugsun og hæfni til að setja fram flóknar upplýsingar með skýrum hætti.
- Framúrskarandi íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti.
- Þekking og reynsla af opinberum fjármálum og stjórnsýslu er kostur.
- Íslenskukunnátta á stigi C1-C2 og enskukunnátta á stigi B2-C1 samkvæmt samevrópska tungumálarammanum.
Nánar um starfið
Á umhverfis- og skipulagssviði er unnið að fjölbreyttum verkefnum sem stuðla að auknum lífsgæðum og bættu borgarumhverfi í Reykjavík. Leiðarljós sviðsins eru framúrskarandi þjónusta, fagmennska og metnaður fyrir enn betri borg. Starfsfólk sviðsins gegnir lykilhlutverki í að þróa og bæta borgina með sérþekkingu sinni og framlagi.
Um er að ræða 100% starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá (hámark tvær blaðsíður) ásamt kynningarbréfi (hámark ein blaðsíða). Þar skal gerð grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni sem nýtist í starfinu með hliðsjón af hæfniskröfum auglýsingarinnar.
Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður horft til gæða umsóknargagna. Umsækjendur sem komast áfram í ráðningarferlinu verða jafnframt beðnir um að leysa verkefni. Við ráðningu verður litið til menntunar, reynslu, frammistöðu í starfsviðtölum, verkefnalausnar og umsagna.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það fjölbreytta samfélag sem borgin er.
Umsóknarfrestur er til og með 6. september nk.
Umsjón með ráðningarferlinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Hilmar G. Hjaltason ([email protected]).
Íslenska










