
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er háskólastofnun með sjálfstæðan fjárhag.
Hlutverk stofnunarinnar er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum á sviði íslenskrar tungu, bókmennta og handrita. Hún hefur það hlutverk að miðla þekkingu á þeim fræðum ásamt því að varðveita og efla þau söfn sem henni eru falin.
Fjármálastjóri hjá Árnastofnun
Árnastofnun leitar að öflugum aðila í starf fjármálastjóra á rekstrarsvið stofnunarinnar. Við leitum að metnaðarfullum aðila sem er tilbúinn til að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni í nýju húsnæði stofnunarinnar í Eddu.
Við ráðningar í störf Árnastofnunar er tekið mið af jafnréttisstefnu stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppgjör og regluleg upplýsingagjöf um fjárreiður.
- Umsjón með bókhaldi, launavinnslu og reikningshaldi.
- Umsjón með styrkjaumsóknum og uppgjöri á rannsóknarstyrkjum.
- Áætlanagerð, markmiðasetning og eftirlit með árangri.
- Úttekt á stöðu stofnunarinnar í samræmi við lög um opinber fjármál.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólapróf á sviði viðskiptafræði eða hliðstætt próf sem nýtist í starfi.
- Þekking á bókhalds-og mannauðskerfum.
- Reynsla af áætlanagerð og uppgjöri.
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð greiningarhæfni og framsetning gagna.
- Góð íslenskukunnátta og færni í rituðu máli.
- Reynsla og þekking á rekstri ríkisstofnana er kostur.
Fríðindi í starfi
í Eddu er líflegt samfélag fræðimanna, háskólakennara og nemenda. í Eddu er rekinn veitingarstaðurinn Ýmir sem býður upp á hádegisverð alla virka daga sem starfsmenn hússins njóta góðs af. Hjá Árnastofnun er starfandi kröftugt starfsmannafélag sem stendur fyrir viðburðum af ýmsu tagi yfir árið.
Auglýsing birt20. ágúst 2026
Umsóknarfrestur31. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
DanskaNauðsyn
Staðsetning
Arngrímsgata 3, 107 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFjárhagsáætlanagerðFrumkvæðiHagfræðingurHeiðarleikiHreint sakavottorðLaunavinnslaMetnaðurNákvæmniOpinber stjórnsýslaSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðUppgjörVaktaskipulagVerkefnastjórnunViðskiptafræðingurÞjónustulundÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (2)

