
Fjármálastjóri (CFO)
Jónsbók er fyrirtæki sem býr til gervigreindarlausnir fyrir lögfræðinga á Íslandi, Norðurlöndunum, Ungverjalandi, Króatíu, Rúmeníu, Póllandi og brátt fleiri Evrópulöndum.
Vegna örs vaxtar og alþjóðlegrar útrásar leitum við að öflugum fjármálastjóra. Þetta er lykilhlutverk þar sem þú vinnur beint með stofnendum og stjórn að því að byggja upp fjármálainnviði, aga og yfirsýn sem styður hraðan vöxt félagsins á mörgum mörkuðum.
Ef þú vilt vinna í umhverfi þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif, byggt upp fjármálastarfsemi frá grunni og tekið þátt í einum hraðast vaxandi hugbúnaðarsprota á Íslandi, þá er þetta tækifærið fyrir þig.
Athugið að við erum opin fyrir umsækjendum sem vilja byrja í 50-80 % starfi en skoðum allar umsóknir.
Sem fjármálastjóri Jónsbókar munt þú:
- Bera ábyrgð á fjármálastjórnun félagsins: fjárhagsáætlun, rúllandi spám, mánaðaruppgjöri og skýrslugjöf til stjórnenda og stjórnar
- Fylgjast með og greina lykilmælikvarða SaaS-fyrirtækja (MRR/ARR, framlegð, churn/NRR, burn og runway) og styðja ákvarðanir um fjárfestingar, markaðsútvíkkun og ráðningar
- Byggja upp innra eftirlit og útgjaldaaga: samþykktarheimildir, greiðsluferla og lausafjár- og gjaldeyrisstýringu
- Bera ábyrgð á bókhaldi, skattskilum, ársreikningum og samskiptum við endurskoðendur og ytri bókara
- Leiða skatta- og fjármálafylgni á erlendum mörkuðum, þ.m.t. mat á félagaskipan, ráðningarformi og áhættu á fastri starfsstöð, í samstarfi við staðbundna ráðgjafa
- Hafa yfirumsjón með launavinnslu, launatengdum skuldbindingum og fjármála- og skattahlið kauprétta- og hlutabréfakerfa
- Halda utan um R&D-kostnað, styrki og skattaívilnanir frá fjárhagslegu sjónarhorni
- Leiða fjárhagslegan undirbúning fjármögnunarlota: fjárfestalíkön, cap table, sviðsmyndagreiningar og gagnaherbergi fyrir áreiðanleikakannanir
- Vera einn helsti samstarfsaðili stofnenda í fjárfesta- og fjármögnunarviðræðum eftir því sem félagið stækkar
- Menntun og reynsla á sviði fjármála, endurskoðunar eða rekstrar (t.d. viðskiptafræði, hagfræði, löggilding í endurskoðun er kostur)
- Hefur reynslu af fjármálastjórnun, uppgjörsvinnu eða fjármálagreiningu – reynsla úr hugbúnaðar- eða sprotaumhverfi er mikill kostur
- Hefur góðan skilning á skattamálum og reglufylgni, og áhuga á að vinna með alþjóðleg viðfangsefni (VSK, launatengd gjöld, milliverðlagning o.fl.)
- Þrífst í óvissu, ert praktísk(ur) og hefur gaman af því að byggja upp ferla og kerfi frá grunni
- Tekur ábyrgð, sýnir frumkvæði og getur unnið sjálfstætt jafnt sem þvert á teymi
- Reynsla af SaaS- eða áskriftarrekstri og tengdum mælikvörðum (ARR, NRR, CAC/payback)
- Reynsla af fjáröflun, samskiptum við fjárfesta eða áreiðanleikakönnunum
- Reynsla af alþjóðlegum rekstri: stofnun og umsjón erlendra félaga, EOR-lausnum eða launavinnslu í fleiri en einu landi
- Þekking á R&D-skattaívilnunum og styrkjaumhverfi
- Góð framkoma í kynningum og hæfni til að einfalda flókin fjármál fyrir teymi, stjórn og fjárfesta
- Vertu hluti af ferðalagi þar sem þú getur haft raunveruleg áhrif
- Byggðu upp fjármálastarfsemi ört vaxandi alþjóðlegs hugbúnaðarfyrirtækis frá grunni
- Starfaðu í fremstu röð við að móta hvernig gervigreind er notuð í lögfræði
- Starfaðu með nýjustu tækni og teymi sem lærir og framkvæmir hratt, með viðskiptavini á Íslandi og erlendis
- Möguleiki á ferðalögum og þátttöku í uppbyggingu á nýjum mörkuðum
- Samkeppnishæf kjör og möguleiki á árangurstengingu
Enska
Íslenska

