Advise Business Monitor
Advise Business Monitor
Advise Business Monitor

Sérfræðingur í fjármálagreiningum

Langar þig að hjálpa stjórnendum fyrirtækja að taka betri ákvarðanir með skýrari rekstrar- og fjárhagsupplýsingum?

Við hjá Advise leitum að reynslumiklum sérfræðingi sem hefur góðan skilning á rekstri og fjármálum fyrirtækja og nýtur þess að vinna með fjárhagsgögn, greiningar og stjórnendaupplýsingar. Starfið felur jafnframt í sér náið samstarf við stjórnendur við innleiðingu og áframhaldandi þróun á notkun Advise.

Starfið er fjölbreytt og sameinar fjármálagreiningar, uppsetningu stjórnendamælaborða og innleiðingu lausnarinnar hjá nýjum viðskiptavinum. Þú tekur við nýjum viðskiptavinum eftir að söluferli lýkur, kynnir þér rekstur þeirra og tryggir að uppsetning Advise endurspegli þær upplýsingar og lykiltölur sem skipta mestu máli fyrir reksturinn.

Í starfinu vinnur þú náið með framkvæmdastjórum, fjármálastjórum og öðrum stjórnendum fyrirtækja. Þú vinnur með rekstrar- og fjárhagsgögn þeirra og tryggir að þau séu sett fram á skýran og hagnýtan hátt í stjórnendamælaborðum sem veita góða yfirsýn og styðja við betri ákvarðanatöku.

Þetta er lykilhlutverk í áframhaldandi uppbyggingu Advise. Þú berð ábyrgð á því að greiningar og stjórnendamælaborð veiti skýra mynd af rekstrinum og að viðskiptavinir fái sem mest virði úr lausninni eftir því sem þarfir þeirra þróast.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Greina rekstrar- og fjárhagsgögn og setja þau fram á skýran og hagnýtan hátt í stjórnendamælaborðum.
  • Greina þarfir stjórnenda og þróa greiningar og lykiltölur í takt við rekstur fyrirtækja.
  • Stýra innleiðingu Advise hjá nýjum viðskiptavinum frá upphafi til afhendingar.
  • Halda afhendingar- og kennslufundi og aðstoða stjórnendur við að nýta gögn betur við ákvarðanatöku.
  • Byggja upp sterk langtímasambönd og þróa notkun Advise í takt við þarfir viðskiptavina.
  • Greina tækifæri til að skapa aukið virði með nýjum greiningum, lausnum og sérsniðinni þjónustu.
  • Leysa flóknari mál sem tengjast gögnum, uppsetningu og greiningum.
  • Vinna náið með sölu- og þróunarteymi að áframhaldandi þróun lausnarinnar og þjónustuferla.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjármála, rekstrar, viðskiptafræði, reikningshalds eða sambærilegra greina
  • Góður skilningur á rekstri fyrirtækja og fjárhagsupplýsingum

  • Geta til að lesa og greina rekstrarreikning, efnahag og helstu rekstrarmælikvarða.

  • Reynsla af ráðgjöf, viðskiptastýringu eða innleiðingu tæknilausna er kostur

  • Sterk samskipta- og þjónustulund

  • Skipulögð, sjálfstæð og lausnamiðuð vinnubrögð

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti

  • Gott tæknilæsi og áhugi á fjármálum, hugbúnaði og sjálfvirkni

Við bjóðum
  • Ábyrgðarmikið og fjölbreytt starf í vaxandi hugbúnaðarfyrirtæki

  • Tækifæri til að vinna náið með stjórnendum fjölbreyttra fyrirtækja

  • Mikið sjálfstæði og áhrif á þróun starfsins

  • Tækifæri til að móta þjónustu-, innleiðingar- og viðskiptastýringarferla

  • Öflugt samstarf við sölu-, ráðgjafar- og þróunarteymi

  • Sveigjanleika og góða vinnuaðstöðu á skrifstofu okkar við Dalveg 30A

  • Tækifæri til að vaxa með fyrirtækinu og taka að sér aukna ábyrgð

Um Advise

Advise þróar einfalda og notendavæna lausn sem hjálpar stjórnendum að fá skýrari yfirsýn yfir rekstur og fjárhag fyrirtækja.

Með sjálfvirkum tengingum við bókhalds- og viðskiptakerfi fá viðskiptavinir aðgang að stjórnendamælaborðum, rekstrar- og efnahagsgreiningum, sjóðstreymi, áætlunum, sölugreiningum og öðrum lykilupplýsingum á einum stað.

Markmið okkar er að draga úr handvirkri skýrslugerð og hjálpa stjórnendum að verja meiri tíma í að skilja tölurnar og taka betri ákvarðanir.

Advise er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki í örum vexti og þjónustar fjölbreytt fyrirtæki á Íslandi og öðrum Norðurlöndum. Við erum metnaðarfullt og samheldið teymi sem vinnur náið saman að því að þróa vöruna, bæta upplifun viðskiptavina og byggja upp öflugt fyrirtæki til framtíðar.

Starfið heyrir undir rekstrarstjóra Advise.

Auglýsing birt11. ágúst 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Dalvegur 30A
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁrsreikningarPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FjárhagsáætlanagerðPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hönnun ferlaPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Viðskiptasambönd
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar