

Fjármálastjóri
Rafholt leitar að reyndum og metnaðarfullum fjármálastjóra til að leiða fjármál og birgðastýringu félagsins. Viðkomandi ber heildarábyrgð á fjármálum, reikningshaldi og fjárstýringu, auk þess að taka virkan þátt í stefnumörkun félagsins.
Leitað er að einstaklingi sem vill takast á við krefjandi og ábyrgðarmikið starf í metnaðarfullu og ört vaxandi fyrirtæki, þar sem áhersla er lögð á fagmennsku, ábyrga fjármála- og birgðastýringu og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini og samstarfsaðila.
Rafholt er leiðandi fyrirtæki á sviði raflagna, fjarskipta, varaafls, rafstöðva og kælilausna. Hjá félaginu starfa um 170 manns og er það einn stærsti vinnuveitandi Íslands á raflagnamarkaði.
Fyrirtækið hefur skýra framtíðarsýn um áframhaldandi vöxt og þróun og bjóðum við upp á gott starfsumhverfi, góðan starfsanda og fjölbreytt tækifæri til starfsþróunar. Öflugt starfsmannafélag er starfandi og aðstaða starfsfólks til fyrirmyndar.
-
Ábyrgð og stýring á fjármálum, reikningshaldi, innkaupum og birgðum félagsins
-
Umsjón með árshluta- og ársuppgjöri, gerð ársreikninga og fjárhagsáætlana
-
Greining, samantekt og miðlun fjárhagsupplýsinga til stjórnar
-
Fjármögnun og samskipti við fjármálastofnanir
-
Aðkoma að starfrænni þróun og rekstri á fjárhagskerfum
-
Gerð og eftirfylgni fjárhagsáætlana og spálíkana
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. í viðskiptafræði, hagfræði eða fjármálum
-
Reynsla af reikningshaldi, uppgjörsvinnu, birgðabókhaldi og innkaupum
-
Góð þekking á fjárhags- og upplýsingakerfum
-
Hæfni til að greina og miðla fjárhagsupplýsingum á skýran hátt
-
Frumkvæði, skipulagshæfni og lausnamiðað hugarfar
-
Geta til að leiða samskipti við innlenda jafnt sem erlenda hagsmunaaðila
-
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Íslenska
Enska



