Rafholt ehf.
Rafholt ehf.
Rafholt ehf.

Bókari

Rafholt óskar eftir að ráða drífandi, nákvæman og ábyrgðarfullan einstakling í starf bókara. Bókari sinnir daglegu bókhaldi félagsins í nánu samstarfi við aðalbókara og fjármálastjóra. 

Við leitum að einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði og býr yfir sterkri þjónustulund og lausnamiðuðu hugarfari. Um er að ræða fullt starf hjá vaxandi og metnaðarfullu fyrirtæki þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, nákvæmni og skilvirkan fjármálarekstur. 

Rafholt er leiðandi fyrirtæki á sviði raflagna, fjarskipta, varaafls, rafstöðva og kælilausna. Hjá félaginu starfa um 170 manns og er það einn stærsti vinnuveitandi í rafverktöku á Íslandi. Við bjóðum upp á gott starfsumhverfi, góðan starfsanda og fjölbreytt tækifæri til starfsþróunar. Öflugt starfsmannafélag er starfandi og aðstaða starfsfólks til fyrirmyndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg færsla bókhalds og afstemmingar   

  • Reikningagerð 

  • Verkbókhald - uppgjör verka  

  • Gerð og skil á tollskýrslum í samræmi við lög og reglur   

  • Undirbúningur fyrir ársuppgjör og samstarf við fjármálastjóra og endurskoðendur 

  • Árshlutauppgjör og skýrslugerð til stjórnenda 

  • Önnur verkefni sem til falla eftir atvikum   

  • Þátttaka í umbótavinnu deildarinnar 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og/eða haldbær reynsla sem nýtist í starfi   

  • Góð þekking og reynsla af bókhaldi og verkbókhaldi 

  • Þekking og reynsla af DK og Business Central bókhaldskerfi mikill kostur 

  • Góð þekking og reynsla af tollskýrslugerð skilyrði  

  • Mjög góð færni í notkun Excel    

  • Mjög góð greiningarhæfni og vandvirk vinnubrögð    

  • Frumkvæði, sjálfstæði í starfi og jákvætt við horf  

Auglýsing birt12. maí 2026
Umsóknarfrestur22. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Smiðjuvegur 4B, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar