Icelandia
Icelandia
Icelandia

Ferðasérfræðingur - hópadeild

Ferðaskrifstofa Icelandia leitar að söludrifnum og skipulögðum einstaklingi með mikla samskiptahæfileika í starf ferðasérfræðings í hópadeild. Ferðasérfræðingur ber ábyrgð á tilboðsgerð og bókunum fyrir viðskiptavini og svarar hvers konar fyrirspurnum sem koma í söludeildina.

Ferðaskrifstofa Icelandia er leiðandi ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa yfir 600 einstaklingar sem leggja sig fram við að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustuupplifun. Fyrirtækið sinnir ferðamönnum með ólíkri þjónustu sem spannar allt frá rútuferðum til sérsniðinna ævintýraferða.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um er að ræða tímabundna stöðu fram á haust.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sala og þjónusta með áherslu á hópa- og sérferðir.
  • Undirbúningur, framkvæmd og úrvinnsla ferða.
  • Önnur tilfallandi sölutengd verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla af sambærilegum störfum er æskileg.
  • Víðtæk þekking á staðháttum á Íslandi ásamt framboði á þjónustu og afþreyingu.
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í töluðu og rituðu máli er skilyrði.
  • Mjög góð skipulags- og samstarfshæfni.
Fríðindi í starfi
  • Fjölbreytt og skapandi verkefni í ört vaxandi vinnuumhverfi.
  • Frábær vinnuaðstaða og sveigjanleiki.
  • Líkamsræktarstyrkur og sálfræðistyrkur.
Auglýsing birt26. maí 2025
Umsóknarfrestur1. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 12, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SölumennskaPathCreated with Sketch.Þekking staðhátta á Íslandi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar