
Íslandsstofa
Íslandsstofa er samstarfsvettvangur atvinnulífsins og stjórnvalda og hefur það hlutverk að auka gjaldeyristekjur þjóðarinnar með þróttmiklu starfi í þágu íslenskra útflutningsgreina.
Með faglegu kynningarstarfi og samræmdum skilaboðum vekjum við áhuga á íslenskum vörum og þjónustu á erlendri grundu og kynnum Ísland sem ákjósanlegan áfangastað erlendra ferðamanna og vænlegum kosti fyrir beina erlenda fjárfestingu.
Með fræðslu og ráðgjöf eflum við samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og búum þau undir sókn á erlenda markaði. Í samstarfi við miðstöðvar skapandi greina vekjum við athygli á íslenskri menningu og listum og styðjum við kynningu á þeim erlendis

Fagstjóri erlendra almannatengsla
Íslandsstofa leitar að öflugum einstaklingi til að sinna starfi fagstjóra erlendra almannatengsla á sviði markaðssamskipta. Í starfinu felst umsjón og skipulag með almannatengslastarfi Íslandsstofu, samskipti við erlendar almannatengslastofur og uppbygging skipulagðrar miðlunar um Ísland á erlendum vettvangi. Við leitum að skapandi og drífandi liðsfélaga sem er tilbúinn að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni á alþjóðlegum vettvangi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Meistaragráða æskileg
Umfangsmikil reynsla af almannatengslum í alþjóðlegu umhverfi
Reynsla af verkefnastjórnun
Framúrskarandi ensku- og íslensku kunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta s.s. þýska, franska eða spænska er ótvíræður kostur
Færni til að tjá sig í ræðu og rituðu máli, setja fram og miðla upplýsingum og koma fram og halda kynningar á íslensku og ensku
Frumkvæði, metnaður, færni í að starfa í hóp og góð samskiptahæfni
Brennandi áhugi á íslensku viðskiptalífi og starfssviði Íslandsstofu
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í mótun samskiptastefnu Íslandsstofu, sem og einstakra starfssviða
Umsjón með mótun og almannatengslum Íslandsstofu í samræmi við stefnumótun stjórnvalda um íslenskar útflutningsgreinar
Samskipti við almannatengslastofur erlendis (verkefnastýring, eftirfylgni, samningar)
Samskipti við erlenda fjölmiðla og svörun fyrirspurna
Samræming skilaboða þvert á starfsgreinar og markaði
Umsjón með umfjöllunarvakt og skýrslugerð
Auglýsing birt15. apríl 2021
Umsóknarfrestur26. apríl 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Sundagarðar 2, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Innkaup og þjónusta
Rubix Ísland ehf

Markaðsstjóri Sensa
Sensa ehf.

Sérfræðingur í reikningsskilum og fjármálum
Fjármála og efnahagsráðuneytið

Framkvæmdastjóri Fimleikafélagsins Björk
Fimleikafélagið Björk

Sveriges ambassad i Reykjavik söker assistent till ambassadören med delansvar för främjande
Sendiráð Svíþjóðar

Verkefnastjóri í MICE
HL Adventure

Sérfræðingur í innkaupum
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Verkefnastjóri við Upplýsingaþjónustu og bókasafn Háskólans á Akureyri
Háskólinn á Akureyri

Verkefnastjóri í fjármálateymi - Nýr Landspítali – Hlutastarf
Nýr Landspítali ohf.

Fjármálastjóri
SÁÁ

Sérfræðingur í opinberum innkaupum
FSRE

Teymisstjóri launamála hjá Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjarðarbær