Sómi
Sómi
Sómi

Ert þú lausnamiðaður sérfræðingur í upplýsingatækni?

Sómi ehf. leitar að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi í fjölbreytt starf á sviði upplýsingatækni. Viðkomandi mun hafa umsjón með upplýsingatækniumhverfi félagsins, þjónusta aðra starfsmenn og taka virkan þátt í þróun og innleiðingu nýrra tæknilausna.

Starfið hentar vel einstaklingi sem býr yfir góðri þekkingu á upplýsingatækni, hefur ríka þjónustulund, ánægju af fjölbreyttum verkefnum og vill hafa áhrif á þróun tæknimála hjá fyrirtækinu.

Um framtíðarstarf er að ræða. Vinnutími er alla virka daga frá kl. 08:00 til 16:00.

Helstu verkefni og ábyrgð

·         Umsjón með upplýsingatækniumhverfi félagsins

·         Samvinna og samskipti við birgja og þjónustuaðila á sviði upplýsingatækni

·         Aðstoð og þjónusta við starfsmenn og notendur upplýsinga- og tölvukerfa

·         Þróun og innleiðing nýrra tæknilausna og sjálfvirknivæðing

·         Viðhald, endurbætur og uppbygging á öllu sem snýr að upplýsingatækni

·         Aðstoð við gerð fræðsluefnis

·         Tækifæri til að móta framtíðar upplýsingatækniumhverfi félagsins

·         Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður leggur til, meðal annars á sviði gæða- og öryggismála

Menntunar- og hæfniskröfur

·         Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi, t.d. á sviði kerfisstjórnunar eða tölvunarfræði

·         Framúrskarandi almenn tæknikunnátta er skilyrði

·         Reynsla og áhugi á notkun gervigreindar

·         Reynsla af hugbúnaðarþróun kostur

·         Framúrskarandi kunnátta í íslensku og ensku er skilyrði

·         Sjálfstæð, öguð og skipulögð vinnubrögð

·         Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund

·         Frumkvæði, útsjónarsemi og lausnamiðuð hugsun

·         Hæfni til að forgangsraða verkefnum, vinna undir pressu og bregðast fljótt við óvæntum atburðum

Fríðindi í starfi

Sómi er rótgróið fyrirtæki og leiðandi á sínu sviði. Sómi var stofnað árið 1978 og hefur síðan þá lagt mikið kapp á að bjóða landsmönnum upp á ferskar vörur og góða þjónustu. Sómi hefur einsett sér að vera í fararbroddi á sínum sviði. Það er einungis mögulegt ef allir starfsmenn Sóma leggjast á árarnar og vinna saman sem öflugt teymi. Hjá Sóma starfa um 100 manns. Gildi fyrirtækisins eru: Ferskleiki og stöðug gæði.

Hæfir einstaklingar eru hvattir til að sækja um, óháð kyni, kynþætti, uppruna eða öðrum bakgrunni.

Auglýsing birt11. september 2026
Umsóknarfrestur9. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Gilsbúð 9, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.DrifkrafturPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GervigreindPathCreated with Sketch.KerfishönnunPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft 365PathCreated with Sketch.NotendaviðmótPathCreated with Sketch.NýjungagirniPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.Verkefnastjórnun í upplýsingatækniPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar