Seltjarnarnesbær
Seltjarnarnesbær
Seltjarnarnesbær

Deildarstjóri fagstarfs - Mýró

Mýrarhúsaskóli auglýsir eftir drífandi og kraftmiklum deildarstjóra fagstarfs í 100% starfshlutfall. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf strax,

Í Mýrarhúsaskóla eru um 340 nemendur í 1. – 6. bekk. Við skólann starfa um 60 manns og hefur skólinn á að skipa reynslumiklu og hæfu starfsfólki. Skólinn starfar samkvæmt hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar – uppbyggingu sjálfsaga, sem stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat. Góð samskipti og samstarf starfsfólks, nemenda, foreldra og annarra samstarfsaðila er forsenda þess að vel takist til við að byggja upp gott og mannvænt samfélag. Einkunnarorð skólans eru virðing - ábyrgð - vellíðan og er lögð áhersla á að þau einkenni skólastarfið.

Deildarstjóri situr í stjórnendateymi skólans fer með mannaforráð og daglega verkstjórn. Hann þarf að vera öðrum góð fyrirmynd og öflugur ráðgjafi í krefjandi starfsumhverfi. Því skiptir þekking deildarstjóra á viðfangsefnum skóla- og uppeldismála, farsæld og stuðningsúrræða miklu máli.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vera  faglegur leiðtogi sem yfirfærir sýn og stefnu skólans á skólastarfið með þróunarstarfi og þeim björgum og úrræðum sem við á hverju sinni til að ná þeim markmiðum 
  • Skapa góðan vinnuanda með því að hlúa að starfsmönnum. Stuðla að samvinnu, samkennd og samábyrgð gagnvart faglegu starfi skólans  
  • Samskipti við nemendur og rýni í dagleg störf starfsmanna með það að leiðarljósi að geta veitt ráðgjöf sem nýtist í þeim aðstæðum sem við á hverju sinni 
  • Sinna faglegri kennslufræðilegri forystu með áherslu á þróun í kennsluháttum 
  • Veita starfsfólki endurgjöf og leiðsögn 
  • Samskipti við grunnþjónustu skólans, s.s. foreldra, skólaþjónustu, heilsugæslu, fræðsluaðila o.s.frv. Þessi samskipti eiga ávallt að vera í þágu nemenda og starfsmanna 
  • Skipuleggja og leiða fundi í þágu skólastarfsins og skólaþróunnar 
  • Skipuleggur stundatöflur fagfólks í samráði við aðra stjórnendur 
  • Tekur þátt í störfum teyma og ráða innan skólans, í samráði við skólastjóra 
  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf skal fylgja umsókn)
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar er æskileg
  • Haldgóð þekking á kennslufræði námsgreina á yngsta- og miðstigi og kennslureynsla
  • Mjög góð þekking og reynsla af fjölbreyttu námsmati
  • Góð þekking á MENTOR
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum, námsaðlögun og samþættingu
  • Leiðtoga- og skipulagshæfni mikilvæg
  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki og samstarfshæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og áhugi á að starfa í skapandi og metnaðarfullu umhverfi
  • Stundvísi og samviskusemi
Fríðindi í starfi
  • Heilsuræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Bókasafnskort
  • Sundkort
Auglýsing birt15. maí 2025
Umsóknarfrestur29. maí 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Kennari
Starfsgreinar
Starfsmerkingar