Vesturbyggð
Vesturbyggð
Vesturbyggð

Skólastjóri í Patreksskóla

Vesturbyggð óskar eftir að ráða skólastjóra við Patreksskóla.

Skólastjóri gegnir lykilhlutverki í mótun skólastarfsins og í samstarfi skóla og samfélags. Jafnframt ber skólastjóri ábyrgð á starfsemi skólans, rekstri og mannauðsmálum. Við leitum að leiðtoga með metnað og einlægan áhuga á framþróun í skólastarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri skólans
  • Fagleg forysta skólans um þróun náms og kennslu og farsæld nemenda
  • Ábyrgð á framþróun í skólastarfi
  • Hafa forystu um og styðja samstarf í samræmi við farsældarlög
  • Fjármál og rekstur
  • Leiða samstarf starfsfólks, nemenda, heimila og skólasamfélagsins í heild
  • Samstarf við skólanefnd, bæjarstjóra og bæjarstjórn
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu og kennslureynsla á grunnskólastigi
  • Framhaldsmenntun í stjórnun eða uppeldis- og kennslufræðum er æskileg
  • Farsæl reynsla af rekstri, stjórnun og skólaþróun er æskileg
  • Þekking á lögum og reglugerðum sem varða skólastarf
  • Þekking á stafrænni tækni í skólastarfi
  • Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
  • Leiðtogafærni, metnaður og framsýni
  • Jákvætt viðmót og mjög góð samskiptahæfni
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Auglýsing birt16. maí 2025
Umsóknarfrestur2. júní 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Aðalstræti 53, 450 Patreksfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar