Frumherji hf
Frumherji hf
Frumherji hf

Deildar og tæknistjóri rafmagnsdeildar

Frumherji leitar að deildar og tæknistjóra rafmagnsdeildar.

Starfið

· Daglegur rekstur og fagleg ábyrgð rafmagnsdeildar.

· Skoðanir á neysluveitum, raforkuvirkjum og öryggisstjórnunarkerfum rafveitna.

· Önnur tilfallandi verkefni.

· Starfinu fylgja ferðalög innanlands.

Hæfniskröfur

· Rafmagnsverk- eða tæknifræðingur af sterkstraumssviði auk tveggja ára reynslu við störf sem lúta að hönnun og/eða vinnu við háspennuvirki.

· Sveinspróf eða meistarapróf í rafvirkjun er kostur.

· Reynsla af skoðunum neysluveitna og raforkuvirkja er kostur.

· Löggilding hönnuðar er kostur.

· Góð íslensku og enskukunnátta.

Við leitum að einstaklingi með jákvætt viðmót, góða þjónustulund, er áreiðanlegur og getur starfað sjálfstætt.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar veitir Jóhann, [email protected]

Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

Auglýsing birt8. desember 2025
Umsóknarfrestur23. desember 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar