Heinemann Travel Retail Iceland ehf.
Heinemann Travel Retail Iceland ehf.

BUSINESS & E-COM ANALYST

Við leitum að metnaðarfullum og lausnamiðuðum sérfræðingi í rekstrargreiningu og netverslun sem vill hafa raunveruleg áhrif á árangur fyrirtækisins. Ef þú hefur brennandi áhuga á gögnum, stafrænum viðskiptum og umbótum – þá viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í þessu fjölbreytta hlutverki munt þú:

Stýra gagnadrifnum umbótum
• Kortleggja og nýta nýjar gagnalindir
• Skilgreina KPI fyrir öll svið og hanna mælaborð og innsýn
• Tryggja gæði gagna og samræmda gagnastjórnun
• Deila innsýn og stuðla að gagnadrifinni ákvarðanatöku

 
Styðja stjórnendur og rekstur
• Vinna náið með fjármálateymi að spám og fjárhagsáætlunum
• Vera ráðgefandi fyrir stjórnendur
• Undirbúa reglulega fundi með greiningum og áskorunum

 
Þróun netverslunar
• Vinna náið með markaðsdeils að rekstri og þróun netverslunar
• Greina frammistöðu vefsins
• Framkvæma prófanir, greiningar og umbótaverkefni

 
Rekstur og stuðningur
• Fylgjast með pöntunum og styðja þjónustuver
• Leiða verkefni og beiðnir í Omni-kerfum
• Framkvæma UAT prófanir á útgáfum og breytingum

Menntunar- og hæfniskröfur

Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Við leitum að einstaklingi sem:
• Hefur sterka greiningarfærni og góða tækniþekkingu
• Er forvitinn, lausnamiðaður og óhræddur við að spyrja „af hverju?“
• Hefur reynslu af gagnagreiningu, BI-verkfærum eða netverslun
• Er lipur í samskiptum og nýtur þess að vinna með ólíkum teymum
• Tekur frumkvæði og hefur gaman af að leiða breytingar
Reynsla úr smásölu, stafrænum viðskiptum eða fjármálum er kostur

Auglýsing birt20. febrúar 2026
Umsóknarfrestur1. mars 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.GagnagreiningPathCreated with Sketch.GreiningarfærniPathCreated with Sketch.MarkaðsgreiningPathCreated with Sketch.MarkaðsmálPathCreated with Sketch.MarkaðsrannsóknirPathCreated with Sketch.Markaðssetning á netinuPathCreated with Sketch.Viðskiptagreind
Starfsgreinar
Starfsmerkingar