Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja
Bílaumboðið Askja

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ

Askja Reykjanesbæ sem er hluti af Bílaumboðinu Öskju óskar eftir færum bifvélavirkjum til starfa í nýrri starfsstöð í Reykjanesbæ. Í boði eru spennandi störf hjá öflugu þjónustufyrirtæki í fremstu röð.

Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn viðhalds-og viðgerðarvinna
  • Þjónustuskoðanir
  • Bilanagreiningar
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveinspróf í bifvélavirkjun
  • Reynsla af vinnu á verkstæði kostur
  • Samstarfs- og samskiptahæfni
  • Góð samskiptahæfni, þjónustulund og jákvætt viðmót
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni
  • Öguð, snögg og nákvæm vinnubrögð
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Almenn tölvukunnátta og hæfni til að tileinka sér tækninýjungar
  • Gild ökuréttindi
Af hverju Askja?

Askja leggur áherslu á að skapa menningu sem einkennist af gleði, samvinnu og sveigjanleika. Það gerum við með því að veita starfsfólki stuðning og skapa því umhverfi til að geta veitt viðskiptavinum afburðaþjónustu. Áhersla er lögð á opin og uppbyggileg samskipti. Leitað er lausna og jákvæðni höfð að leiðarljósi. Öflugt starfsmannafélag er hjá Öskju og reglulegir viðburðir og skemmtanir. 

Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur5. júní 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Njarðarbraut 11, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveinsprófPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar