
Klettur - sala og þjónusta ehf
Saga Kletts og forvera félagsins nær aftur til 1947 og er því óhætt að segja að félagið byggi á traustum grunni sérhæfðrar þekkingar og reynslu. Árið 2010 markaði nýtt upphaf en þá hófst starfsemi Kletts sem tók yfir allan rekstur vélasviðs Heklu. Allar götur síðan hefur Klettur verið leiðandi í sölu og þjónustu sem nær yfir breiða línu vinnuvéla, aflvéla, rafstöðva, lyftara, rafgeyma, hleðslukrana, hjólbarða, vöruflutninga- og hópferðabíla, gíra og skrúfubúnaðar. Klettur býður einnig upp á ýmsan hliðarbúnað og fylgihluti frá þekktum vörumerkjum.
Helstu vörumerki félagsins eru Caterpillar vinnuvélar, aflvélar, rafstöðvar og lyftarar, Perkins aflvélar og rafstöðvar, Scania vöruflutninga- og hópferðabifreiðar, Scania aflvélar og rafstöðvar, Goodyear, Dunlop, Sava, Fulda, og Maxam hjólbarðar, Ingersoll Rand loftpressur, Mitsubishi gufuaflstúrbínur, ZF gírar, Hiab hleðslukaranar og gámakrókar, Scana Volda skrúfu- og gírbúnaður, Ausa vinnuvélar, Multione liðléttingar, Hubtex lyftarar, Hawker neyslurafgeymar, Langendorf vagnar og pallar og Larue snjóblásarar. Félagið hefur starfað í marga áratugi með helstu birgjum sínum og er meðal elstu umboðsaðila þeirra vörumerkja í Evrópu.
Félagið og starfsmenn leggja metnað sinn í að vera leiðandi í sölu og þjónustu á þeim mörkuðum sem félagið vinnur á og að þær vörur og þjónusta sem boðið er uppá hjálpi viðskiptavinum Kletts að ná sem bestum árangri.

Bifvélavirki - Akureyri
Vegna góðrar verkefnastöðu og aukinna umsvifa leitum við að öflugum aðila í bilgreiningar og viðgerðir á vörubílum, hópferðabílum og tengdum búnaði.
Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi starfsmanna á nýju verkstæði okkar á Akureyri. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreiningar á rafbúnaði, vélum, gírkössum, drifum, undirvagni og öðrum íhlutum.
- Almenn viðhaldsvinna, s.s. viðgerðir á vélum, gírkössum, drifum, undirvagni, rafmagnsbúnaði og öðrum íhlutum.
- Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda.
- Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Fullgild réttindi sem bifvélavirki eða vélvirkjun kostur.
- Fagmennska og vinnusemi.
- Kunnátta til að fara með bilanagreinar, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri.
- Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
- Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur matur.
- Sterkt og virkt starfsmannafélag.
- Íþróttastyrkur.
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.
Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Goðanes 2b
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunMeistarapróf í iðngreinVélvirkjun
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)

Klettur - Viðgerðarmaður í loftlausnum
Klettur - sala og þjónusta ehf

Starfsmaður á lager/verslun Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélfræðingur/rafvirki vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur - Vélvirki á vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélvirki/Vélstjóri Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði - Reykjavík
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf
Sambærileg störf (12)

Sumarstarfsmaður á verkstæði
Rafgeymasalan ehf.

Bifvélavirkjar - Askja Reykjanesbæ
Bílaumboðið Askja

Vélfræðingur/rafvirki vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Klettur - Vélvirki á vélaverkstæði CAT
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélvirki/Vélstjóri Akureyri
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði - Reykjavík
Klettur - sala og þjónusta ehf

Bifvélavirki á vörubílaverkstæði Hafnarfirði
Klettur - sala og þjónusta ehf

Vélstjóri/keyrslumaður í fóðurframleiðslu
Fóðurblandan

Starfsmaður í verksmiðju TDK Foil Iceland ehf á Akureyri.
TDK Foil Iceland ehf

Verkstjóri vélsmiðju á starfsstöð HD á Akureyri
HD Iðn- og tækniþjónusta

Carglass
Carglass

Óskum eftir vélvirkja
Trefjar ehf