Klettur -  sala og þjónusta ehf
Klettur - sala og þjónusta ehf
Klettur -  sala og þjónusta ehf

Klettur - Viðgerðarmaður í loftlausnum

Leitað er að aðila til að ganga til liðs við öflugt teymi vélfræðinga og vélvirkja á verkstæði okkar í Klettagörðum í Reykjavík. Verkefnin eru fjölbreytt og spennandi í fyrirmyndaraðstöðu.
Leitum við að aðila sem getur unnið sjálfstætt. Starfið felur í sér vinnu inni á verkstæði sem og á starfsstöðum viðskiptavina við þjónustu á loftpressum og loftkerfum.

Helstu verkefni og ábyrgð

• Bilagreining á loftkerfum
• Hafa góða og haldbæra þekkingu á rafmagni.
• Almenn viðhaldsvinna á loftkerfum og tengdum búnaði
• Uppsetning og uppstart á nýjum búnaði
• Vinna eftir gæðakerfi Kletts og fylgja handbókum, stöðlum og fyrirmælum framleiðanda
• Framfylgja öryggis- og brunareglugerðum
• Sækja námskeið á vegum Kletts og annarra kennslustofnana
• Önnur tilfallandi verkefni

Menntunar- og hæfniskröfur

• Menntun sem nýtist í starfi.
• Kunnátta til að fara með bilanagreinar, sérverkfæri og önnur tengd verkfæri er kostur
• Góð íslensku- og/eða enskukunnátta
• Nákvæmni, stundvísi og góð samstarfs- og samskiptahæfni

Fríðindi í starfi

• Niðurgreiddur matur.
• Sterkt og virkt starfsmannafélag.
• Íþróttastyrkur.
• Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins.

Auglýsing birt24. apríl 2026
Umsóknarfrestur11. maí 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Klettagarðar 8-10 8R, 104 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar