

Viltu díla við bíla?
Bifvélavirkjar óskast til starfa hjá Öskju
Við leitum að öflugum bifvélavirkjum til að ganga til liðs við sérhæfðan og öflugan hóp á bifvélaverkstæðum Öskju. Boðið er upp á úrvals vinnuaðstöðu til þjónustu og viðgerða í húsnæði Öskju við Krókháls 11 og 13 í Reykjavík og Njarðarbraut 11, Reykjanesbæ.
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-Benz, Kia, Honda og smart. Hjá Öskju starfar vel þjálfaður og öflugur hópur starfsfólks, en virk þjálfun og endurmenntun starfsfólks er í samræmi við gæðastaðla birgja. Askja er dótturfélag Inchcape á Íslandi sem er hluti af alþjóðlega fyrirtækinu Inchcape Plc sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu á bifreiðum og er skráð í kauphöllina í London. Inchcape er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði, starfar á 38 mörkuðum með yfir 16.000 starfsmenn og vinnur með stærstu bílaframleiðendum heims.
- Bilanagreiningar með sérhæfðum greiningartækjum
- Viðhald og viðgerðir samkvæmt stöðlum framleiðenda
- Framkvæmd þjónustuskoðana
- Sveinspróf í bifvélavirkjun og/eða reynsla við bílaviðgerðir æskileg
- Góð tölvukunnátta og áhugi á nýrri tækni
- Sterk þjónustulund
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð
- Vertu hluti af hratt vaxandi, alþjóðlegu fyrirtæki með þekkt bílamerki
- Starfaðu með stuðningsríku og samvinnuþýðu teymi sem leggur áherslu á nýsköpun, fjölbreytileika og faglegt vinnuumhverfi
- Tækifæri til að þróa feril þinn innan alþjóðlegs fyrirtækis
Íslenska
Enska










