
Peugeot á Íslandi | Brimborg
Brimborg er sölu- og þjónustuaðili Peugeot á Íslandi.
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims en auk Peugeot hefur Brimborg umboð fyrir Volvo, Ford, Polestar og Mazda, ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum auk hágæða hjólbarða frá Nokian.
Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, bílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.

Bifvélavirki - Peugeot
Brimborg leitar að bifvélavirkja til starfa á Peugeot verkstæði okkar að Bíldshöfða 8. Við leitum að öflugum og metnaðarfullum bifvélavirkja sem hefur áhuga á að sérhæfa sig í Peugeot og vinna við fölbreytt verkefni, bilanagreiningu og viðgerðir. Hjá Brimborg færðu tækifæri til að vinna með nýjustu bíltækni, sérhæfðan greiningarbúnað og fjölbreytt úrval Peugeot bifreiða. Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, góða aðstöðu og að starfsmenn fái tækifæri til að þróa þekkingu sína áfram.
Við leitum að einstaklingi sem:
- Er með sveinspróf og/eða meistarapróf í bifvélavirkjun eða mikla reynslu af viðgerðum
- Er skipulagður, samviskusamur og metnaðarfullur
- Er áreiðanlegur og vinnur faglega og sjálfstætt
- Hefur áhuga á að taka þátt í uppbyggingu og vexti vörumerkis Peugeot á Íslandi.
Við bjóðum:
- Sérhæfingu í Peugeot
- Nútímalega vinnuaðstöðu og góðan tækjabúnað
- Aðgang að sérhæfðum greiningartækjum og verkstæðisupplýsingum
- Þjálfun og símenntun í nýjustu bíltækni
- Skemmtileg og fjölbreytt verkefni hjá metnaðarfullu fyrirtæki
- Öflugt starfsmannafélag með fjölbreyttu félagslífi og viðburðum
Helstu verkefni og ábyrgð
- Bilanagreining og viðgerðir á Peugeot bílum
- Reglubundið viðhald og þjónusta
- Greining á raf- og rafeindakerfum
- Regluleg vörumerkjaþjálfun og símenntun
Menntunar- og hæfniskröfur
- Réttindi í bifvélavirkjun eða sambærileg reynsla af bílaviðgerðum
- Frumkvæði, sjálfstæði og fagleg vinnubrögð
- Snyrtimennska, stundvísi og áreiðanleiki
- Gilt bílpróf
Fríðindi í starfi
- Fjölbreytt fríðindi samkvæmt mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vörum og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
- Þú færð frí á afmælisdaginn þinn, enda stórmerkilegur dagur
Auglýsing birt15. september 2026
Umsóknarfrestur30. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 8, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
BifvélavirkjunBílvélaviðgerðirFrumkvæðiÖkuréttindiSamviskusemiStundvísiVélvirkjunÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Starfsmaður í bílarèttingu
Réttverk ehf.

Fjölhæfur dugnaðarforkur
Ísblik ehf

Bifvélavirki - Peugeot
Peugeot á Íslandi | Brimborg

Húsumsjón – húsvarsla hjá golfklúbbi
Golfklúbbur Klettar

Vélvirki
Nói Síríus

Skoðunarmaður óskast !
Tékkland bifreiðaskoðun

Starfsmaður á vélaverkstæði Akureyri
Vegagerðin

Vélvirkjar/Vélstjórar/ Stálsmiðir-Mechanics/Steelwo.
HD Iðn- og tækniþjónusta

Starfsmaður á verkstæði
Airport Associates

Rekstrarstjóri Tækjaverkstæðis - Keflavíkurflugvöllur
Icelandair

Sölumaður varahluta
Hagvangur

Öflugt viðgerðarfólk á verkstæði Vélafls
Vélafl ehf