Hveragerðisbær
Hveragerðisbær

Bæjarritari - Hveragerðisbær

Hveragerðisbær óskar eftir að ráða bæjarritara sem hefur þekkingu og reynslu á sviði stjórnsýslu í fjölbreytt starf bæjarritara. Bæjarritari heyrir undir bæjarstjóra og er hans staðgengill. Fyrirhugaðar skipulagsbreytingar munu fela í sér að staða bæjarritara mun einnig verða að sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.

Bæjarritari starfar náið með stjórnendum bæjarins og sinnir fjölbreyttum málaflokkum. Bæjarritari heldur utan um starfsemi bæjarráðs og bæjarstjórnar, ber ábyrgð á skjala- og gæðamálum bæjarins og kemur að innleiðingu stafrænnar stefnu sveitarfélagsins.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Bæjarritari er ritari bæjarráðs og bæjarstjórnar
  • Túlkun laga og reglugerða á málefnasviðum sveitarfélagsins
  • Ábyrgð á skjalavistun og þátttaka í umbótaverkefnum
  • Lögfræðileg álit og ráðgjöf um afgreiðslu einstakra mála
  • Undirbúningur stjórnsýsluákvarðana og ákvarðana um lögfræðileg málefni
  • Ráðgjöf við samningagerð, útboð og aðra skjalagerð bæjarins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Meistarapróf í lögfræði eða opinberri stjórnsýslu
  • Haldbær starfsreynsla sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun er kostur
  • Haldbær þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu
  • Þekking á löggjöf á málefnasviðum sveitarfélaga 
  • Þekking á lögum um skipulags- og umhverfismál er kostur
  • Góð samskiptafærni
  • Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði, framsýni og metnaður
  • Góð tölvukunnátta og reynsla af stafrænni þróun
  • Mjög gott vald á íslensku í ræðu og riti
Auglýsing birt13. október 2025
Umsóknarfrestur27. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Breiðamörk 20, 810 Hveragerði
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar