Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Skrifstofustjóri á skrifstofu náttúru og minjaverndar

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsir stöðu skrifstofustjóra á skrifstofu náttúru- og minjaverndar í ráðuneytinu lausa til umsókna í tengslum við breytingar á skipulagi ráðuneytisins, sem tekur gildi 1. janúar 2026. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn.

Í ráðuneytinu starfar um 50 manna samhentur hópur. Ráðuneytið leggur áherslu á öfluga teymisvinnu og hefur hlotið gæðavottun umhverfisstjórnunarkerfis og jafnlaunavottun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Skrifstofan sinnir löggjöf á sviði náttúru- og minjaverndar, verkefnum tengdum náttúruvernd á landi og í hafi, minjavernd, uppbyggingu og rekstri innviða á friðlýstum svæðum, landgræðslu og skógrækt, veiðistjórnun, verndar- og orkunýtingaráætlun ásamt líffræðilegri fjölbreytni. Þá sinnir skrifstofan verkefnum er varða náttúruvá, þ.m.t. gerð vöktunar- og rannsóknaráætlana og hættumats ásamt framkvæmdum ofanflóðasjóðs.

Skrifstofustjóri stýrir skrifstofu náttúru- og minjaverndar undir yfirstjórn ráðuneytisstjóra og sinnir daglegum rekstri hennar. Viðkomandi ber ábyrgð á faglegu starfi og verkefnum skrifstofunnar, þ. á m. samhæfingu við aðrar skrifstofur innan ráðuneytisins og önnur ráðuneyti eftir þörfum.

Hlutverk skrifstofu náttúru- og minjaverndar er að koma áherslum ríkisstjórnar og yfirstjórnar ráðuneytisins í framkvæmd með stefnumótun, innleiðingu, framkvæmd, eftirfylgni og árangursmati innan málaflokka ráðuneytisins. Skrifstofan ber jafnframt ábyrgð á þeim alþjóðasamningum og erlendu samstarfi sem undir hana heyrir, ásamt innleiðingu og eftirfylgni með gerðum ESB.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi.
  • Framúrskarandi þekking á málaflokkum skrifstofunnar.
  • Farsæl reynsla af stjórnun eða stýringu stærri verkefna.
  • Víðtæk þekking á laga- og regluumhverfi opinberrar stjórnsýslu ásamt lögum um opinber fjármál.
  • Haldbær reynsla af stefnumótun.
  • Afburða samskiptafærni og hæfni til að skapa jákvætt og öflugt vinnuumhverfi og samvinnu.
  • Öflug færni í að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og umbótasinnuð hugsun ásamt getu til að starfa sjálfstætt.
  • Stafræn hæfni.
  • Mjög gott vald á íslensku, ensku og einu Norðurlandamáli og færni til að tjá sig í ræðu og riti. 
Auglýsing birt6. október 2025
Umsóknarfrestur21. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 26, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar