
Krónan
Verslanir Krónunnar eru í dag 26 talsins auk Snjallverslun. 19 á höfuðborgarsvæðinu auk verslana á Akureyri, Akranesi, Reyðarfirði, Reykjanesbæ, Selfossi, Hvolsvelli og Vestmannaeyjum.
Á hverjum degi – allan ársins hring keppumst við, starfsfólk Krónunnar, við að koma réttu vöruúrvali til þín á eins ódýran hátt og mögulegt er. Þrátt fyrir lágt vöruverð gefum við engan afslátt af ferskleikanum.

Aðstoðarverslunarstjóri | Krónan höfuðborgarsvæði
Krónan leitar að framúrskarandi manneskju í starf aðstoðarverslunarstjóra. Verkefni aðstoðarverslunarstjóra eru að stýra daglegum rekstri verslunar í samvinnu við verslunarstjóra og stuðla að hvatningu meðal starfsfólks til að ná settum markmiðum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Efla hópinn í að búa til góða upplifun fyrir viðskiptavini
- Daglegt skipulag til að fylgja eftir verkferlum og gæðum
- Vaktaplön og þjálfun
- Verkstýring starfsfólks
- Þátttaka í markaðs- og sölumálum í verslun
- Stjórnandi verslunar í fjarveru verslunarstjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af verslunarstjórnun er kostur
- Reynsla af matvörumarkaði er kostur
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Tölvukunnátta kostur (leysa dagleg verkefni í Outlook, Excel og Navision)
- Góðir samskiptahæfileikar og þjónustulund
Fríðindi í starfi
- Styrkur til heilsueflingar
- Aðgangur að Velferðarþjónustu Krónunnar
- Afsláttarkjör hjá N1, Krónunni, ELKO og Lyfju
Auglýsing birt10. apríl 2026
Umsóknarfrestur24. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Dalvegur 10-14, 201 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniLeiðtogahæfniMetnaðurSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagVaktaskipulagÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Aðstoðarverslunarstjóri | Krónan Þorlákshöfn
Krónan

Sölumaður Fagsölu - BYKO Akureyri
Byko

Egilsstaðir - sumarstarf
N1

Flugstöð - Fullt starf. Vaktavinna
Penninn Eymundsson

Verslunarstjóri - Kjörbúðin Ólafsfirði
Kjörbúðin

Sölufulltrúi í Blómval á Akureyri
Blómaval

Verslunarstjóri Subway Bankastræti
Subway

Lagerstarfsmaður
Kappahl

Lyfja Reykjanesbæ - Umsjónarmaður verslunar
Lyfja

Sumarstarf í vöruhúsi - Byko Kjalarvogi
Byko

A4 Skeifan - vaktstjóri
A4

Afgreiðslu og lagerstarf - Smáratorgi
KiDS Coolshop