A4
A4
A4

A4 Skeifan - vaktstjóri

A4 óskar eftir að ráða kraftmikinn vaktstjóra í verslun okkar í Skeifunni. Við leitum eftir starfskrafti sem er ábyrgðarfullur og sjálfstæður til að starfa á okkar góða vinnustað. Einstaklingurinn þarf að vera jákvæður, þjónustulundaður og góður í samskiptum.

Unnið er á vöktum og er vinnutíminn frá kl. 10:00 – 19:00.
Aðra vikuna er unnið mánudag, þriðjudag, föstudag, laugardag og sunnudag, hina vikuna er unnið miðvikudag og fimmtudag.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni:

  • Sala, ráðgjöf og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini verslunarinnar
  • Verkstjórnun og þjálfun starfsfólks
  • Ábyrgð og umsjón með uppgjörum
  • Vörumóttaka, áfyllingar og framstillingar í verslun
  • Afgreiðsla á kassa
  • Skapa jákvæðan starfsanda og vera fyrirmynd starfsfólks
  • Önnur almenn verslunarstörf

Kröfur um hæfni og reynslu:

  • Reynsla af sölu- og verslunarstörfum
  • Framúrskarandi þjónustulund og áhugi á sölustörfum
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Snyrtimennska og auga fyrir framstillingu vara
  • Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi
  • Samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni
  • Íslenskukunnátta skilyrði
  • Hreint sakavottorð
  • 20 ára aldurstakmark

Umsóknarfrestur er til og með 17. apríl 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurborg, verslunarstjóri, í síma 580-0090 eða [email protected].

A4 er framsækið fyrirtæki og leggur metnað sinn í að vera í fararbroddi á sviði húsgagna, skrifstofu-, skóla-, föndur- og hannyrðavara og leggur áherslu á góða og trausta þjónustu við viðskiptavini. Við erum stolt af því að geta boðið upp á heimsþekkt vörumerki sem eiga það öll sameiginlegt að vera í háum gæðaflokki. Hjá fyrirtækinu starfa um 140 manns.

Auglýsing birt8. apríl 2026
Umsóknarfrestur17. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Skeifan 17, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar