Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar

Þjónustufulltrúi - Framtíðarstarf á Akureyri

Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í þjónustu- og afgreiðslustörf hjá Bílaleigu Akureyrar á starfsstöð okkar að Tryggvabraut 12 á Akureyri.

Þínar þarfir – okkar þjónusta er okkar slagorð og því leitum við að einstaklingi með framúrskarandi þjónustulund.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í þjónustu og afgreiðslu þar sem enginn dagur er eins. Tilvalið starf fyrir þau sem elska að vinna með fólki og veita framúrskarandi þjónustu.

Vinnutími er kl. 8:00–17:00 virka daga og sjötta hver helgi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Móttaka og þjónusta við viðskiptavini
  • Útleiga og móttaka á bílum
  • Upplýsingagjöf, sala og ráðgjöf til viðskiptavina
  • Ferjanir á bílum
  • Fjölbreytt tilfallandi verkefni sem tengjast daglegum rekstri
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Rík þjónustulund
  • Góðir samskiptahæfileikar
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Bílpróf B (réttindi á beinskipta bíla er skilyrði)
  • Íslensku- og enskukunnátta
Höldur - Bílaleiga Akureyrar

Höldur ehf. var stofnað árið 1974 og rekur Bílaleigu Akureyrar, stærstu bílaleigu landsins með um 8.000 bíla flota. 

Höldur kappkostar að vera framúrskarandi vinnustaður þar sem umhyggja er borin fyrir sérhverjum starfsmanni. Með áherslu á gleði, jafnrétti, gott starfsumhverfi, starfsþróun og góða fyrirtækjamenningu er skapaður eftirsóknarverður vinnustaður.

Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur19. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Tryggvabraut 12, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.VandvirkniPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar