Byko
Byko
Byko

Sölumaður Fagsölu - BYKO Akureyri

Við hjá BYKO erum að leita að öflugum starfsmanni til liðs við okkur í Fagsölu BYKO á Akureyri. Ef þú ert framsækinn og faglegur starfsmaður með gleðina í fyrirrúmi þá erum við að leita að þér.

Vinnutími er frá kl. 8-17 og um er að ræða fullt starf.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Þjónusta, ráðgjöf og sala til fagaðila í byggingariðnaði

Hæfniskröfur:

  • Þjónustulipurð
  • Þekking og reynsla af byggingamarkaði
  • íslenskukunnátta, skilyrði

Fríðindi í starfi

  • Velferðarstyrkur
  • Líkamsræktarstyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Styrkur til töku fæðingar- og foreldraorlofs
  • Símastyrkur (ef við á)

Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.

Unnið verður úr umsóknum jafnóðum.

BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavina í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði.

Allar nánari upplýsingar veitir Egill Snær Þorsteinsson ([email protected]), verslunarstjóri.

Auglýsing birt7. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Óðinsnes 2, 603 Akureyri
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar