Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta
Sóltún heilbrigðisþjónusta

Aðstoðarmaður í sjúkra- og iðjuþjálfun - Sóltúni heilbrigðisþjónustu, Sóltúni í Reykjavík

Við í Sóltúni Reykjavík leitum að metnaðarfullum og jákvæðum aðstoðarmanni sjúkraþjálfara til að ganga til liðs við okkar frábæra teymi í fjölbreytt og gefandi starf. Við bjóðum upp á faglegt starfsumhverfi, öflugt teymi og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á lífsgæði og vellíðan í hlýlegu umhverfi þar sem vellíðan og virðing eru í fyrirrúmi.

Um er að ræða 50% stöðu, með möguleika á auknu starfshlutfalli.

Skilyrði er að viðkomandi sé með góða íslensku kunnáttu (C1/C2), sé orðinn 18 ára og með hreint sakavottorð.

Helstu verkefni

  • Aðstoða sjúkraþjálfara við meðferð og þjálfun íbúa
  • Önnur tilheyrandi verkefni tengd líkamsþjálfun, eins og stólaleikfimi, gönguhópar og jafnvægishópar
  • Hafa eftirlit með íbúum á þjálfunarsvæði
  • Hafa eftirlit með búnaði og húsnæði
  • Umhirða og tiltekt í starfsrými sjúkraþjálfunar
  • Sinna léttum þrifum á tækjum
  • Taka þátt í öðrum störfum og aðstoða í verkefnum innan sjúkra- og iðjuþjálfunar eftir þörfum
  • Geta unnið í teymi og með skjólstæðinga með fjölbreytt heilsufarsástand, bæði líkamlegt og hugrænt


Menntunar og hæfniskröfur

  • Menntun er tengist starfinu - td. sjúkraþjálfunarnemi, íþróttafræðinemi, einkaþjálfari eða fyrri reynsla af störfum sem aðstoðarmaður sjúkraþjálfara (eða reynsla tengd leikfimis- og/eða líkamsþjálfun aldraðra/fatlaðra)
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu samstarfi
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
  • Skipulagshæfni og sveigjanleiki
  • Reynsla af umönnunarstarfi eða öðru starfi með öldruðum er kostur en ekki skilyrði


Starfskjör og fyrirkomulag

  • Launakjör skv. viðeigandi kjarasamningi og SFV
  • Niðurgreiddur hádegismatur
  • Íþróttastyrkur
  • Samgöngustyrkur
  • Fatapeningur
  • Hlýlegt og faglegt starfsumhverfi
  • Þverfaglegt samstarf og öflugt teymi
Auglýsing birt30. júní 2026
Umsóknarfrestur13. júlí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Sóltúni 2, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar