

Umönnunarstörf - Sóltún heilbrigðisþjónusta, Sóltúni Sólvangi í Hafnarfirði
Sóltún heilbrigðisþjónusta auglýsir eftir starfsfólki í umönnun
Sóltún Sólvangi hjúkrunarheimili, hluti af Sóltúni heilbrigðisþjónustu, leitar að starfsfólki með hjartað á réttum stað í störf við umönnun.
Langar þig að vinna í góðum félagsskap og í gefandi starfsumhverfi þar sem þú tekur ríkan þátt í daglegu lífi aldraðra? Þá gæti þetta verið starfið fyrir þig.
Við leitum að duglegum, jákvæðum og stundvísum einstaklingum til starfa við umönnun aldraðra.
Umsækjendur þurfa að hafa ríka samskiptahæfni og hafa gaman af því að umgangast eldra fólk.
Helstu verkefni:
- Umönnun og aðstoð við daglegar athafnir íbúa
- Stuðningur við vellíðan og félagslega virkni íbúa
- Samvinna við samstarfsfólk í þverfaglegu teymi
Hæfniskröfur:
- Jákvætt viðhorf, ábyrgð og góð samskiptahæfni
- Góð íslenskukunnátta (C1/C2)
- 18 ára aldur eða eldri
- Hreint sakavottorð er skilyrði
Starfskjör og fyrirkomulag:
- Um vaktafyrirkomulag er að ræða
- Starfshlutfall er samkomulag
- Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningi Eflingar og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Íþróttastyrkur
- Samgöngustyrkur
- Fatapeningur
Sóltún Sólvangi hefur á að skipa öflugum hópi starfsmanna með mikinn metnað fyrir vellíðan og lífsgæðum íbúa. Við leggjum áherslu á styðjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk fær tækifæri til að vaxa og þróast í starfi.
Íslenska










