Heimaþjónusta Fjarðabyggðar
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar
Heimaþjónusta Fjarðabyggðar

Starfsmaður í heimaþjónustu - helgarvinna

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til starfa í þjónustuíbúðum eldra fólks og almennri heimaþjónustu í Neskaupstað.

Um er að ræða helgarvinnu frá 10:00-16:00 og er unnið öllu jafna inni á heimilum og eftir þjónustusamningum hvers og eins þjónustuþega. Staðsetning er í Neskaupstað. Möguleiki er á hærra starfshlutfalli ef áhugi liggur fyrir.

Starfsmaður í heimaþjónustu starfar eftir lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991, lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglum Fjarðabyggðar um stuðningsþjónustu. Markmiðið heimaþjónustu er að styðja eldra fólk til að búa sem lengst á eigin heimilum og að rjúfa félagslega einangrun þeirra. Lögð er áhersla á að viðhalda og örva einstaklinga til bættrar andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Veita persónulega aðstoð
  • Stuðningur við þau verk sem þarf að leysa af hendi á heimili notanda 
  • Félagslegur stuðningur
  • Aðstoð við hádegisverð í þjónustuíbúðum fyrir eldra fólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi
  • Gerð er krafa um að starfsmenn tali og skilji íslensku
  • Gerð er krafa um hreint sakavottorð
  • Gerð er krafa um bílpróf og eigin bíl til afnota
Auglýsing birt22. maí 2026
Umsóknarfrestur5. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Vinna undir álagiPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar