

Aðstoðarmaður í sjúkraþjálfun óskast til starfa hjá Heilsuvernd Dvöl – Endurhæfingu
Heilsuvernd Dvöl-Endurhæfing óskar eftir að ráða aðstoðarmann í sjúkraþjálfun. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.
Á Heilsuvernd Dvöl - Endurhæfingu eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.
Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.
Við leitum að einstaklingi til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hefur jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og er tilbúin að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.
- Aðstoða skjólstæðinga við æfingar í sal
- Þrif á búnaði sjúkraþjálfunar
- Skráning í tölvukerfi
- Sjá um léttar æfingar fyrir íbúa og notendur heimilanna
- Eflir samheldni með því að skapa skjólstæðingum vettvang til samveru
- Góð samskiptahæfni
- Þolinmæði og sveigjanleiki
- Frumkvæði og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi
- Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
- Almenn tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta, bæði talað og skrifað mál
Íslenska
Enska










