

Aðstoðarfólk óskast í Garðabæ
Skemmtilegt aðstoðarfólk óskast
Ég er 32 ára ungur maður, búsettur í Garðabæ, sem leitar að aðstoðarfólki til starfa í NPA þjónustu. Ég er hreyfihamlaður og nota hjólastól. Áhugamálin mín eru meðal annars tölvuleikir, kvikmyndir, tónlist, fiskar og norræn goðafræði.
Ég er að leita að hressu og skemmtilegu starfsfólki, á aldrinum 20-40 ára. Ef þú ert opin, getur tekið leiðsögn og átt auðvelt með mannleg samskipti þá er ég að leita að þér.
Ég er að leita að aðstoðarfólki í afleysingar. Starfið hentar því vel þeim sem starfa þegar hjá verkstjórnanda í NPA, eða í svipuðu umönnunarstarfi, og vilja auka við sig vinnu. Unnið er 12 tíma vaktir, kl. 09-21 eða kl. 21-09.
Í starfinu felst aðstoð við persónulegt hreinlæti, þrif, eldamennsku og almennt heimilishald, aðstoð við innkaup, fara út að ganga með hundana og ýmislegt skemmtilegt eins og að þræða verslanir Nexus, fara í bíó, út að borða eða allt það sem ég tek mér fyrir hendur hverju sinni. Ef ég er í innlögn á spítala, fer vaktin fram þar.
Sett eru skilyrði um að viðkomandi sé með hreint sakavottorð og með bílpróf. Einnig að viðkomandi tali íslensku eða ensku. Umsækjendur þurfa vera opin fyrir dýrum þar sem hundar og fiskar búa á heimilinu.
Starfið byggist á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf og NPA sem má kynna sér á www.npa.is.
Laun eru skv. samningi NPA miðstöðvar við Eflingu.



















