

Aðstoðardeildarstjóri - Dauðhreinsun
Við leitum eftir metnaðarfullum og framfarasinnuðum hjúkrunarfræðingi í starf aðstoðardeildarstjóra á Dauðhreinsun við Tunguháls. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á stjórnun og gæðamálum og þarf að búa yfir afburða samskiptahæfni og hafa hæfni til að takast á við breytingar. Aðstoðardeildarstjóri starfar náið með deildarstjóra og fylgir eftir ákvörðunum um skipulag starfseminnar og verklag á deild sem og innleiðingu nýjunga. Starfshlutfall er 100% og unnið í dagvinnu. Starfið er laust 1. desember n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Dauðhreinsun verður meðal fyrstu eininga sem flytur í nýjan spítala og verður því deildin í mikilli þróun á næstu árum til undirbúnings fyrir það. Aðstoðardeildarstjóri verður, ásamt deildarstjóra, lykilaðili við að undirbúa flutning deildarinnar og því felst meðal annars að endurskipuleggja starfsemi deildarinnar, rýna ferla og tryggja gæði þjónustunnar. Aðstoðardeildarstjóri er virkur þátttakandi í stjórnendateymi deildarinnar í ýmsum verkefnum tengdum stjórnun, rekstri, þjónustu og mannauði. Starfið felur í sér mikla teymisvinnu þar sem unnið er í góðu samstarfi við þverfagleg teymi og fjölmargt annað fagfólk spítalans. Í boði er spennandi og áhugavert starf og mikil tækifæri til að taka þátt í umbreytingarverkefnum.
Á deildinni starfa um 17 einstaklingar í þverfaglegu teymi sem samanstendur af sérhæfðu starfsfólki, sótthreinsitæknum og hjúkrunarfræðingum. Meginverkefni deildarinnar snúa að því að raða, pakka og dauðhreinsa verkfæri sem notuð eru á skurðstofum spítalans auk þess að sjá um að pakka og dauðhreinsa verkfæri frá öðrum starfsstöðvum innan og utan spítalans. Starfsemi deildarinnar er mikilvægur hlekkur í skurðstofustarfsemi og í að tryggja öryggi sjúklinga og sýkingarvarnir á Landspítala. Góð vinnuaðstaða er á deildinni og er hún vel tækjum búin. Dauðhreinsun tilheyrir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu Landspítala en þar starfa um 1200 einstaklingar í tæplega 900 stöðugildum.






























































