Brúarásskóli
Brúarásskóli
Brúarásskóli

Aðstoðar matráður/skólaliði óskast í Brúarásskóla

Brúarásskóli óskar eftir manneskju í 90-100% starfshlutfall frá og með 1. ágúst 2026.

Um er að ræða blandað starf sem aðstoðar matráður og skólaliði í samreknum leik- og grunnskóla með rúmlega 40 nemendum. Aðstoðar matráður skólans undirbýr og matreiðir hollar og fjölbreyttar máltíðir fyrir nemendur og starfsfólk í leik- og grunnskóladeild skólans. Leitað er að metnaðarfullum, samviskusömum og jákvæðum einstaklingi sem hefur færni, reynslu og menntun sem nýtist í starfi.

Um er að ræða tímabundið starf í 1 ár og er skólastjóri Brúarásskóla næsti yfirmaður

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Útbýr hádegisverð og miðdegishressingu fyrir nemendur og starfsfólk skólans í samvinnu við matráð.
  • Hefur umsjón með þrifum á matsal, í mötuneyti og í skólastofum og almennu rými innan veggja skólans. 
  • Hjálpar til við innkaup á matvörum fyrir mötuneytið.
  • Skipuleggur matseðla í samvinnu við matráð allt að mánuð fram í tímann.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði matreiðslu kostur
  • Reynsla af starfi við í mötuneyti eða skólaeldhúsi er kostur
  • Reynsla af starfi við ræstingar er kostur
  • Frumkvæði, metnaður, skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta
  • Færni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla af starfi með börnum er kostur 
  • 18. ára og eldri
  • Hreint sakavottorð 
Auglýsing birt1. apríl 2026
Umsóknarfrestur15. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Brúarásskóli/Lóð 1, 701 Egilsstaðir
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar