

Réttarholtsskóli – Yfirmaður mötuneytis
Réttarholtsskóli auglýsir eftir skólaliða í 50% starfshlutfall. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Réttarholtsskóli er í Bústaðahverfi í Reykjavík og er unglingaskóli fyrir nemendur í 8. – 10. bekk. Í skólanum eru um 460 nemendur og starfsmenn um 60. Skólinn hefur á að skipa vel menntuðu og hæfu starfsfólki og er stöðugleiki í starfsmannahaldi. Einkunnarorð skólans eru virðing, virkni og vellíðan. Áhersla er lögð á að bjóða nemendum upp á nám við hæfi, fjölbreytt námsval og skólaanda sem einkennist af virðingu, jákvæðni og samvinnu allra sem skólanum tilheyra. Skólinn er í grónu hverfi og gott samstarf er við foreldra og nærumhverfi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Annast matseld fyrir nemendur og starfsfólk
Umsjón með gerð matseðla
Innkaup og samskipti við birgja
Frágangur í mötuneyti
Umsjón með mötuneyti í samstarfi við skólastjórnendur
Menntun og reynsla í matreiðslu
Þekking á næringarfræði, fæðuofnæmi og rekstri mötuneyta
Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
Sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Íslenskukunnátta C1 samkvæmt samevrópskum staðli um tungumálakunnáttu.
Íslenska










