

Verkefnastjóri á innkaupadeild
Ertu jákvæður, lausnamiðaður og þjónustulipur einstaklingur með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu á hjúkrunar- og rekstrarvörum?
Innkaupadeild Landspítala leitar að öflugum, skipulögðum og áhugasömum verkefnastjóra til samstarfs við útboðsteymi innkaupadeildar sem sér um opinber innkaup á vörum, tækjum og þjónustu. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða skipulagshæfni, framúrskarandi samskiptahæfni og áhuga á að skapa árangur í flóknu og krefjandi umhverfi.
Innkaupadeild Landspítala heyrir undir rekstrar- og mannauðssvið Landspítala en helstu verkefni deildarinnar eru útboð, verðfyrirspurnir, samningskaup, samningar, eftirfylgni samninga og samningastjórnun. Verkefnastjóri við opinber innkaup á hjúkrunar og rekstrarvörum á Innkaupadeild er í miklum samskiptum við hagaðila innan Landspítala og birgja á markaði.
Starfshlutfall er 100% og er upphafsdagur starfs samkomulag.
- Vinna við undirbúning og úrvinnslu á útboðum í rafrænu útboðskerfi
- Vinna við verðfyrirspurnir, samningskaup og samningsgerð
- Samstarf og ráðgjöf við deildir Landspítala (hagaðila) við þarfagreiningu og mótun á tæknilegum og klínískum kröfum í útboðum
- Greina tækifæri til hagkvæmustu innkaupa á heilbrigðismarkaði
- Eftirfylgni með samningum, gæðum og þjónustustigi birgja (samningastjórnun)
- Aðkoma að gerð ferla og verklagsreglna um opinber innkaup
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, háskólapróf í hjúkrunarfræði eða önnur menntun á sviði heilbrigðisvísinda er mikill kostur
- Viðbótarmenntun í Verkefnastjórnun (t.d. MPM, IPMA eða PRINCE2 vottun) og/eða menntun á sviði viðskipta eða opinberrar stjórnsýslu er mikill kostur
- A.m.k. 5 ára starfsreynsla, reynsla úr heilbrigðiskerfinu er mikill kostur
- Þekking á lögum um opinber innkaup nr. 120/2016 og reglugerðum á því sviði er kostur
- Þekking á heilbrigðismarkaði og reglugerðum er varða lækningatæki og rekstrarvörur
- Þekking og reynsla á hjúkrunar- og rekstrarvörum
- Áhugi á innkaupum og hagræðingu í innkaupum
- Þekking og eða áhugi á umhverfismálum
- Reynsla af notkun rafrænna útboðskerfa (sérstaklega TendSign) er mikill kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun og hagnýtri gagna- og markaðsgreiningu er kostur
- Hæfni til að starfa undir álagi og forgangsraða verkefnum
- Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli, þekking á norðurlandamáli er mikill kostur
- Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð ásamt viðeigandi tölvufærni
- Framúrskarandi samstarfshæfni, jákvætt viðmót og rík þjónustulund
English
Icelandic













































