Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi
Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi
Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi

Skrifstofu- og rekstrarfulltrúi

Félag fjallaleiðsögumanna á Íslandi leitar að öflugum og skipulögðum skrifstofu- og rekstrarfulltrúa til að sinna fjölbreyttum verkefnum félagsins í 40–50% starfi. Um er að ræða mikilvægt hlutverk í daglegum rekstri félagsins. Áhersla er lögð á góða þjónustu, fagleg vinnubrögð, náið samstarf við stjórn og tækninefnd félagsins og góð samskipti við leiðbeinendur, nemendur og félagsmenn. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Umsjón með skráningu og skipulagningu námskeiða,

  • bókun leiðbeinenda og samskipti við þá,

  • uppsetning skráningarforma og utanumhald þátttakendalista,

  • bókun kennslurýma og annarrar aðstöðu,

  • skráning meðlima,

  • útgáfa- og greiðsla reikninga.

  • umsjón með tölvupósti og svörun fyrirspurna frá nemendum, félagsmönnum og öðrum,

  • stuðningur og samvinna við stjórn og tækninefnd félagsins í daglegum rekstri og stjórnsýslu,

  • umsjón með samfélagsmiðlum félagsins,

  • önnur tilfallandi verkefni sem tengjast starfsemi félagsins.

Menntunar- og hæfniskröfur

Við leitum að einstaklingi sem

  • hefur reynslu af skrifstofu-, rekstrar- eða þjónustustörfum,

  • býr yfir góðri skipulags- og samskiptahæfni,

  • vinnur sjálfstætt og sýnir frumkvæði,

  • er nákvæmur og ábyrgur í vinnubrögðum,

  • hefur góða tölvukunnáttu og á auðvelt með að tileinka sér ný kerfi,

  • hefur góða íslensku- og enskukunnáttu í ræðu og riti.

Reynsla af reikningagerð, bókhaldi og skipulagningu viðburða er kostur. Eins er menntun sem nýtist í starfi kostur sem og þekking af fjallaleiðsögn.

Fríðindi í starfi

Við bjóðum

  • sveigjanlegt vinnufyrirkomulag í samráði við stjórn,

  • tækifæri til að taka þátt í þróun og eflingu starfsemi félags fjallaleiðsögumanna á Íslandi,

  • gott starfsumhverfi og fjölbreytt verkefni,

  • starf án staðsetningar.
Advertisement published18. July 2026
Application deadline15. August 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Expert
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.Public relationsPathCreated with Sketch.General computer knowledgePathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.AdaptabilityPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.HonestyPathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.BrandingPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.PositivityPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.BillingPathCreated with Sketch.Phone communicationPathCreated with Sketch.Email communicationPathCreated with Sketch.IndependencePathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.FlexibilityPathCreated with Sketch.Website managementPathCreated with Sketch.WordPressPathCreated with Sketch.Customer service
Work environment
Professions
Job Tags