Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunardeildarstjóri/hótelstjóri sjúkrahótels við Hringbraut

Landspítali auglýsir laust til umsóknar starf hjúkrunardeildarstjóra/ hótelstjóra sjúkrahótels á lóð Landspítala við Hringbraut. Við leitum að kraftmiklum stjórnanda til að leiða og efla starfsemi sjúkrahótelsins og byggja upp sterka liðsheild. Starfið er unnið í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra og annað samstarfsfólk.

Hjúkrunardeildarstjóri sem jafnframt er hótelstjóri stjórnar daglegum rekstri og er leiðandi um málefni hótelsins. Markmiðið er að stytta meðallegutíma á spítalanum, efla dag- og göngudeildarþjónustu og bæta skilvirkni. Notendur sjúkrahótels verða ekki innskrifaðir á legudeildir á sama tíma og þeir dvelja á sjúkrahóteli, þeir þurfa að vera sjálfbjarga en gætu þurft eftirlit og aðstoð hjúkrunarfræðings/sjúkraliða eða sértæka þjónustu á dag- og göngudeildum.

Sjúkrahótelið er 75 herbergja og þar geta einnig dvalið aðstandendur sjúklinga, foreldrar sem bíða fæðingar eða fólk sem býr fjarri sérhæfðri heilbrigðisþjónustu.

Hjúkrunardeildarstjóri er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri hjúkrunar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fagleg ábyrgð á uppbyggingu, skipulagi og þróun starfseminnar, setur markmið um gæði og öryggi og tryggir eftirfylgni
  • Starfsmannaábyrgð, þ.e. ábyrgð á uppbyggingu mannauðs og daglegri stjórnun starfsmanna Sjúkrahótelsins
  • Fjárhagsleg ábyrgð, þ.e. ábyrgð á rekstrarkostnaði sjúkrahótelsins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Starfsreynsla sem hjúkrunarfræðingur
  • Framhaldsmenntun í hjúkrun og/ eða önnur framhaldsmenntun á háskólastigi sem nýtist í starfi er kostur
  • Þekking og reynsla af öryggis-, gæða- og umbótastarfi nauðsynleg
  • Reynsla í stjórnunarhlutverki, þ.e. faglegri ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslegri ábyrgð er nauðsynleg
  • Reynsla af rekstri sjúkrahótels er æskileg
  • Jákvætt lífsviðhorf, lausnamiðuð nálgun og framúrskarandi leiðtoga- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
Advertisement published6. July 2026
Application deadline30. July 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (35)
Landspítali
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á smitsjúkdómadeild
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar - Spennandi störf á smitsjúkdómadeild
Landspítali
Landspítali
Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir - Vilt þú taka þátt í að móta framtíð bráðaþjónustu?
Landspítali
Landspítali
Fótaaðgerðafræðingur á innkirtladeild
Landspítali
Landspítali
Sálfræðingur í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérhæft og fjölbreytt starf í sjúkraþjálfun og sundlaug Grensáss
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á Vöknun
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri í sérhæfðu ráðgjafarteymi í bráða- og ráðgjafaþjónustu geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafi/ stuðningsfulltrúi á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bæklunarskurðdeild AB5 í Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á lyflækningadeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ferliþjónustu réttar- og öryggisgeðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sjúkraþjálfari á göngudeild grindarbotns
Landspítali
Landspítali
Skrifstofustarf á bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á legudeild lyndisraskana Kleppi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á blóð- og krabbameinslækningadeild
Landspítali
Landspítali
Verkefnastjóri á innkaupadeild
Landspítali
Landspítali
Lífeindafræðingur, Ísótópastofu
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á nýja bráðamatsdeild
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar - Göngudeild hjartagáttar
Landspítali
Landspítali
Lífeindafræðingur, Ísótópastofu
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Almenn störf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Lyfjatæknir
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Hjúkrunarnemi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Sjúkraliði með starfsleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Umönnunarstörf á Landspítala
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Læknir með lækningaleyfi
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ritara- og skrifstofustörf
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Býtibúr
Landspítali
Landspítali
Viltu vera á skrá? Ljósmóðir með starfsleyfi
Landspítali