

Geislafræðingur - Áhugavert starf á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð
Við óskum eftir metnaðarfullum geislafræðingi í okkar góða teymi á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reynds starfsfólks og gott starfsumhverfi. Mjög góður starfsandi er ríkjandi og ótalmörg tækifæri eru til að vaxa í starfi og styðja við umbætur í þjónustu við skjólstæðinga okkar. Unnið er í dagvinnu virka daga og er starfshlutfall og upphaf starfa samkomulag.
Á deild skimunar og greiningar á Brjóstamiðstöð framkvæma geislafræðingar skimanir fyrir brjóstakrabbameini og klínískar myndgreiningar brjóstameina. Geislafræðingarnir ferðast einnig út um allt land og framkvæma þar brjóstaskimanir. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, náið samstarf í þverfaglegu teymi og tækifæri til að taka virkan þátt í þróun og uppbyggingu brjóstarannsókna. Jafnframt er unnið markvisst að vottun starfseminnar þar sem framlag geislafræðinga er lykilatriði
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Icelandic
English








































