

Þjónustumaður – John Deere | Íslyft ehf.
Íslyft ehf. óskar eftir jákvæðum, metnaðarfullum og tæknilega sterkum þjónustumanni í öflugt þjónustuteymi okkar á Kársnesi í Kópavogi.
Íslyft er stærsti innflytjandi vinnuvéla og búnaðar á Íslandi og hefur stutt íslenskt atvinnulíf með stolti síðan 1972. Við erum umboðsaðili John Deere og annarra leiðandi vörumerkja og leggjum mikla áherslu á fagmennsku, gæði og áreiðanlega þjónustu.
- Sjálfstæð vinna við viðgerðir, viðhald og standsetningu á John Deere og öðrum vélum og tækjum
- Bilanagreining og viðgerðir á véla-, raf- og vökvakerfum
- Þjónusta hjá viðskiptavinum á fullbúinni þjónustubifreið
- Skráning verka og samskipti við viðskiptavini af fagmennsku
- Virk þátttaka í þróun og umbótum á þjónustu og verkferlum
- Menntun sem nýtist í starfi (t.d. vélvirkjun, bifvélavirkjun, vélatækni) eða sambærileg reynsla
- Reynsla af vinnuvélum eða landbúnaðarvélum er mikill kostur
- Nákvæmni, sjálfstæði og sterk lausnamiðuð hugsun
- Stundvísi, ábyrgð og fagleg vinnubrögð
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Fullbúinn þjónustubíl og öll þau verkfæri sem þarf til að vinna starfið af fagmennsku
Fjölbreytt og krefjandi verkefni í spennandi umhverfi
Tækifæri til sérhæfingar og námskeiða, bæði innanlands og erlendis (m.a. John Deere)
Framtíðarstarf hjá traustu fyrirtæki með yfir 50 ára reynslu
Niðurgreiddan hádegismat
Öruggt, jákvætt og uppbyggilegt starfsumhverfi
Starfsmannafélag með fjölbreytta viðburði og aðstöðu – m.a. golfhermi, pílukast, borðtennis og pool
Icelandic










