
Teya Iceland
Teya er fjártæknifyrirtæki, stofnað í Bretlandi árið 2019, með það meginmarkmið að skapa greiðslu- og hugbúnaðarlausnir fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Markmið Teya er að hjálpa fyrirtækjum að sjálfvirknivæða og einfalda reksturinn.
Hingað til hafa lítil og meðalstór fyrirtæki ekki verið í forgangi þegar kemur að þróun og innleiðingu lausna á sviði fjármála- og tækniþjónustu. Flókin verð, falin gjöld, bindandi samningar og fjöldi mismunandi þjónustuaðila gerir daglegan rekstur fyrirtækja flókinn. Við erum hér til að breyta því!
Við erum árangursdrifin og leggjum áherslu á viðhorf frekar en reynslu. Okkar helsta áhersla er að skapa lausnir sem hjálpa fyrirtækjum að vaxa og dafna.
Teya hefur lagt áherslu á að fjárfesta í íslensku hugviti, eins og SalesCloud, Dineout og Noona.

Sölufulltrúi | Business Development Representative
Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í söluteymi Teya á Íslandi. Hjá Teya vinnum við að því að hjálpa fyrirtækjum að einfalda reksturinn með snjöllum greiðslu- og hugbúnaðarlausnum sem skapa raunverulegt virði í daglegum rekstri.
Söluteymið samanstendur af kraftmiklu fólki þar sem sterk liðsheild er lykilatriði. Þú verður mikilvægur partur af teymi sem vinnur að sameiginlegum markmiðum, finnur ný viðskiptatækifæri og byggir upp góð tengsl við mögulega viðskiptavini.
Við leggjum áherslu á fagmennsku, gagnsæi og góða upplifun og leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á sölu og vill vaxa og þróa færni sína með öflugu teymi í alþjóðlegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Koma auga á ný viðskiptatækifæri og mögulega viðskiptavini
- Hafa frumkvæði að samskiptum og byggja upp góð viðskiptatengsl
- Greina þarfir viðskiptavina og kynna lausnir Teya
- Tilboðsgerð og eftirfylgni
- Framkvæma markaðs- og fyrirtækjagreiningar eftir þörfum
- Vinna með sölumarkmið og lykilmælikvarða
- Skrá og halda utan um sölumál í CRM kerfi
- Samstarf við teymi innan fyrirtækisins eftir þörfum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Framúrskarandi hæfni í samskiptum, rík þjónustulund og jákvætt hugarfar
- Frumkvæði, drifkraftur og metnaður til að ná árangri
- Hæfni til að vinna bæði sjálfstætt og í nánu samstarfi við teymi
- Lausnamiðuð hugsun og vaxtarhugarfar
- Áhugi á sölu, tækni og stafrænum lausnum
- Mjög góð færni í íslensku og ensku
- Reynsla af sölu eða þjónustu er kostur
- Reynsla af sölu hugbúnaðarlausna er kostur
- Þekking á sölu- og bókhaldskerfum er kostur
Fríðindi í starfi
- Möguleiki á árangurstengdum greiðslum
- Sveigjanlegur vinnutími
- Gjaldfrjálst aðgengi að léttu fæði á vinnutíma
- Niðurgreiddur hádegismatur í mötuneyti
- Árlegur íþróttastyrkur
- Árlegt heilsufarsmat og stuðningur við andlega heilsu
- Tækifæri til að þróast í starfi hjá alþjóðlegu fyrirtæki
- Frábær starfsandi, reglulegir viðburðir og virkt starfsmannafélag
Advertisement published14. September 2026
Application deadlineNo deadline
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Location
Katrínartún 4, 105 Reykjavík
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Other jobs (1)
Similar jobs (12)

Söluráðgjafi Enterprise-lausna með áherslu á netlausnir
Advania

Söluráðgjafi Enterprise-lausna
Advania

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte
Deloitte

Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankinn

Starf endurskoðanda
Ríkisendurskoðun

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Samningastjóri
Veitur

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust