
Ríkisendurskoðun
Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis og er trúnaðarmaður þess, samkvæmt lögum nr. 46/2016 um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Hann er sjálfstæður og engum háður í störfum sínum. Skrifstofa ríkisendurskoðanda nefnist Ríkisendurskoðun.
Hlutverk embættisins er að hafa í umboði Alþingis eftirlit með rekstri og fjárreiðum ríkisins og ráðstöfun almannafjár. Í þessu felst m.a. að meta hvort reikningsskil ríkisins gefi glögga mynd af rekstri og efnahag, hvort lögum og reglum sé fylgt í starfseminni og hvort frammistaða ríkisaðila við framkvæmd lögbundinna verkefna sé viðunandi með hliðsjón af markmiðum um hagkvæmni, skilvirkni og árangur í ríkisrekstri.
Sjálfstæði embættisins felst í því að þótt það heyri stjórnskipulega undir Alþingi þá velur það sjálft og skipuleggur verkefni sín. Ríkisendurskoðun er því í senn sjálfstæð gagnvart Alþingi og algerlega óháð framkvæmdarvaldinu. Að þessu leyti er staða Ríkisendurskoðunar svipuð og systurembætta hennar í nágrannalöndunum.
Hjá Ríkisendurskoðun starfa um 45 manns á tveimur starfsstöðvum. Aðalskrifstofa embættisins er í Bríetartúni 7 í Reykjavík en auk þess rekur embættið starfsstöð að Glerárgötu 34 Akureyri.
Starf endurskoðanda
Ríkisendurskoðun leitar að öflugum liðsauka í fjárhagsendurskoðun. Um er að ræða fjölbreytt verkefni við endurskoðun ríkisreiknings og reikninga ríkisaðila sem eru unnin bæði sjálfstætt og í teymum.
Starf endurskoðanda heyrir undir fjárhagsendurskoðunarsvið og eru starfsstöðvar embættisins í Reykjavík og á Akureyri.
Ríkisendurskoðandi starfar á vegum Alþingis og er trúnaðarmaður þess samkvæmt lögum nr. 46/2016, um ríkisendurskoðanda og endurskoðun ríkisreikninga. Hlutverk Ríkisendurskoðunar er að hafa eftirlit með rekstri og fjármálum ríkisins og að fjármunum sé ráðstafað á hagkvæman og réttmætan hátt í samræmi við ákvarðanir Alþingis.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Endurskoðun ríkisreiknings og reikninga ríkisaðila
- Eftirlit með nýtingu og meðferð opinbers fjár
- Könnun á innra eftirliti stofnana og virkni þess
- Úttektir á fjárhagsmálefnum ríkisstofnana og ríkisaðila
Menntunar- og hæfniskröfur
- Löggilding í endurskoðun
- Reynsla af endurskoðunarstörfum
- Hæfni til að leiðbeina og stýra verkefnum
- Þekking á alþjóðlegum endurskoðunar- og reikningsskilastöðlum
- Þekking á lögum nr. 123/2015 um opinber fjármál
- Reynsla og/eða þekking á rekstri og fjármálastjórn hins opinbera er kostur
- Þekking á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) er kostur
- Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli
Grunnkröfur fyrir öll störf hjá Ríkisendurskoðun
- Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Metnaður og vilji til að ná árangri í starfi
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð skipulagshæfni og nákvæmni
- Geta til að vinna undir álagi
- Góð almenn tölvukunnátta
Advertisement published25. September 2026
Application deadline13. October 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Bríetartún 7, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
Chartered accountant
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Vanur bókari óskast
Tölvutek

Við erum að ráða í áhættu-og gæðadeild Deloitte
Deloitte

Sérfræðingur - Fyrirtækjaráðgjöf
Landsbankinn

Samningastjóri
Veitur

Bókhald / Fjármál
Mögnum

Skrifstofu- og gæðastjóri
Raftákn

Ráðgjafi í innri endurskoðun og upplýsingaöryggi
KPMG á Íslandi

Ráðgjafi í viðskiptalausnum – tollamál og innkaup
Wise lausnir ehf.

Ráðgjafi sveitarfélaga
Wise lausnir ehf.

Sérfræðingur í þróun virkjana
Orkusalan

Sérfræðingur í kjaramálum á Akureyri
Kjölur stéttarafélag í almannaþjónustu

Fjármálasérfræðingur
BYKO