

Sjúkraliði - Gjörgæsla Fossvogi
Við viljum ráða metnaðarfullan sjúkraliða til starfa á gjörgæsludeild Landspítala í Fossvogi. Áhugavert og fjölbreytt starf með góðu samstarfsfólki. Í boði er góð einstaklingsaðlögun undir leiðsögn reyndra sjúkraliða og frábært starfsumhverfi. Starf á gjörgæsludeild býður upp á tækifæri til að þróa með sér mikla faglega þekkingu og hæfni í sjálfstæðum vinnubrögðum.
Unnið er í vaktavinnu og er starfshlutfall 80-100%. Ráðið er í starfi frá 1. nóvember n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Gjörgæsla heyrir undir skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu og starfa rúmlega 70 starfsmenn, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk við fjölbreytt og krefjandi verkefni, í nánu samstarfi við fagfólk í öðrum sérgreinum og á öðrum deildum spítalans. Deildin þjónar einstaklingum, bæði börnum og fullorðnum, sem þarfnast gjörgæslumeðferðar af margvíslegum ástæðum. Þar er veitt almenn gjörgæslumeðferð ásamt mjög sérhæfðri meðferð sjúklinga með fjöláverka eftir alvarleg slys, höfuðáverka, brunasjúklinga og einstaklinga með alvarlega æðasjúkdóma.
- Ber ábyrgð á að veita skjólstæðingum sínum hjúkrun í samræmi við sýn og stefnu hjúkrunar á Landspítala
- Skipuleggur og forgangsraðar störfum sínum í samráði við hjúkrunarfræðing og í samræmi við þar til gerða hjúkrunaráætlun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Ýmis verkefni í samráði við deildarstjóra
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Faglegur metnaður og framsækni í starfi
- Sveigjanleiki, jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
- Hæfni til að vinna í teymi
- Áhugi og hæfni til að takast á við breytingar
- Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli
Icelandic




























































