Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir
Heilsuvernd Vífilsstaðir

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa hjá Heilsuvernd Vífilsstöðum

Heilsuvernd Vífilsstöðum leitar eftir hjúkrunarfræðingum til starfa. Um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða samkvæmt samkomulagi.

Hjá Heilsuvernd leggjum við okkur fram um að skapa glaðlegt og gott vinnuumhverfi, auk þess sem við leggjum mikinn metnað í að veita framúrskarandi þjónustu.

Á Heilsuvernd Vífilsstöðum eru rekin biðrými fyrir þá einstaklinga sem lokið hafa meðferð á Landspítalanum og hafa ekki heilsu til að búa í sjálfstæðri búsetu. Þjónustan felur í sér að veita þeim skjólstæðingum sem dvelja hjá okkur þá umönnun, þjálfun og eftirlit sem þeir þurfa, á meðan þeir bíða eftir varanlegu búsetuúrræði.

Heilsuvernd er ört stækkandi fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu sem hefur sérhæft sig í heilsu- og vinnuverndarstörfum, heilsugæsluþjónustu og heilbrigðisþjónustu fyrir aldraða.

Við leitum að einstaklingum til starfa í fjölmenningarstarfshóp okkar sem hafa jákvæðni og góð samskipti að leiðarljósi og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt verkefni í sterku teymi fagfólks undir merkjum Heilsuverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrunarstörf
  • Skipulag og ábyrgð á að hjúkrun sé veitt í samræmi við sett markmið og gæðastefnu Heilsuverndar
  • Eftirlit og mat á gæðum hjúkrunar
  • Þátttaka í þróunarverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun og starfsréttindi sem hjúkrunarfræðingur
  • Áhugi á öldrunarþjónustu og vinnu með öldruðum
  • Starfsreynsla í öldrunarþjónustu er æskileg
  • Frumkvæði, jákvæðni og samstarfsvilji
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð samskiptahæfni
  • Þolinmæði og sveigjanleiki
  • Umsækjendur þurfa að lágmarki að hafa grunn kunnáttu í íslenskri tungu
Advertisement published9. September 2026
Application deadline27. September 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Intermediate
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Vífilsstaðavegur 123, 210 Garðabær
Type of work
Professions
Job Tags