

Hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild
Við óskum eftir hjúkrunarfræðingi til starfa á smitsjúkdómadeild A7 í Fossvogi. Unnið er í vaktavinnu sem hefur marga kosti umfram dagvinnu. Starfshlutfall er samkomulag og ráðið er í starfið nú þegar eða samkvæmt samkomulagi. Möguleiki er á þátttöku í gæðastarfi innan deildar samhliða klínísku starfi.
Deildin er 20 rúma sólarhringsdeild ætluð sjúklingum með bráð vandamál á sviði lyflækninga. Deildin sérhæfir sig í smitsjúkdómum en sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og gefast því góð tækifæri til starfsþróunar og að öðlast fjölþætta reynslu. Á deildinni starfa um 80 einstaklingar í virku þverfaglegu samstarfi og unnið er markvisst að faglegri þróun. Starfsandi á deildinni er sérlega góður og spennandi námstækifæri framundan. Við tökum vel á móti nýju samstarfsfólki og veitum einstaklingshæfða aðlögun.
Landspítali styður nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga í starfi með markvissri handleiðslu og fræðslu, samhliða starfi í formi starfsþróunarár hjúkrunarfræðinga.
- Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð
- Virk þátttaka í þróun og umbótum í starfi deildarinnar
- Fylgjast með nýjungum í hjúkrun
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Góð íslenskukunnátta
Icelandic




























































