Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar - Hlévangur, Reykjanesbæ

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða til starfa aðstoðardeildarstjóra hjúkrunar á Hlévangi.

Hlévangur er ný deild innan HSS sem opnar í október 2026. Deildin verður 24 rýma hjúkrunardeild fyrir einstaklinga sem bíða eftir dvöl á hjúkrunarheimili.

Hluti af verkefnum aðstoðardeildarstjóra er að taka þátt í mótun starfseminnar og stefnu í samvinnu við deildarstjóra hjúkrunar.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.

Um er að ræða vaktavinnu og mikilvægt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber faglega ábyrgð á þjónustu, skipulagi og þróun deildar

  • Stuðlar að öflugri samvinnu innan og utan deildarinnar

  • Sinnir fræðslu til nemenda og samstarfsfólks

  • Ábyrgur fyrir skráningu og innleiðingu klínískra leiðbeininga að starfsemi deildarinnar

  • Ábyrgur fyrir að byggja upp öryggismenningu á deildinni

  • Skipuleggur og tekur þátt í þverfaglegu samstarfi

  • Er staðgengill deildarstjóra í fjarveru hans

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur

  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur

  • Reynsla og áhugi á þjónustu við aldraða

  • Reynsla og þekking af gæðastarfi er kostur

  • Faglegur metnaður og leiðtogahæfni

  • Samskiptahæfni

  • Skipulögð og nákvæm vinnubrögð

  • Góð kunnátta í íslensku er skilyrði

  • Frumkvæði til verka og metnaður í starfi

Advertisement published10. September 2026
Application deadline21. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hlévangur Faxabraut 13
Type of work
Professions
Job Tags