

Skemmtilegt starf í Búsetukjarna
Við í búsetukjarnanum Vesturhlíð í Mosfellsbæ leitum að drífandi, jákvæðum og samviskusömum starfskrafti sem hefur mikinn áhuga á samskiptum og að vinna með fólki. Í boði er skemmtilegt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi.
Í búsetukjarnanum Vesturhlíð búa 6 íbúar.
Um er að ræða sólarhringsþjónustu á heimilum fólks svo gengið er út frá því að starfsfólk vinni á fjölbreyttum vöktum (dag-. kvöld-, helgar- og næturvöktum).
Um er að ræða tímabundið starf í hlutastarfi, 60 - 90% starfshlutfall eftir samkomulagi. Starfið er laust strax og möguleiki er á áframhaldandi ráðningu.
Starfsfólk búsetukjarnans í Vesturhlíð aðstoðar fatlað fólk við daglegar athafnir og félagslega virkni allan sólarhringinn, allt árið um kring. Við veitum íbúum einstaklingsmiðaða þjónustu og leggjum okkur fram við að auka lífsgæði þeirra með félagslegri virkni. Í því felst að aðstoða íbúa við dagleg störf, að halda heimili, stunda vinnu og njóta menningar- og félagslífs.
Í Vesturhlíð er starfað eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar og sjálfstæðs lífs.
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks
- Góð almenn menntun
- Reynsla af starfi með fötluðu fólki mikill kostur
- Þekking á hugmyndafræði sjálfstæðs lífs og þjónandi leiðsagnar er kostur
- Jákvæðni og samviskusemi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi
- Hreint sakavottorð
- Aldursskilyrði 20 ár
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Ökuréttindi skilyrði
Icelandic










