Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS)

Hjúkrunarfræðingar - Hlévangur, Reykjanesbæ

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa á hjúkrunardeild Hlévangs í Reykjanesbæ.

Hlévangur er ný deild innan HSS sem opnar í október 2026. Deildin verður 24 rýma hjúkrunardeild fyrir einstaklinga sem bíða eftir dvöl á hjúkrunarheimili.

Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.

Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn hjúkrun og vaktstjórn

  • Ábyrgð á hjúkrun á deild

  • Skipulagning hjúkrunarmeðferðar

  • Samskipti, hvatning og stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Reynsla og áhugi á þjónustu við aldraða

  • Faglegur metnaður og leiðtogahæfni

  • Góð samskiptahæfni

  • Sjálfstæði í og frumkvæði í starfi

  • Gott vald á íslensku bæði í mæltu og rituðu máli

Advertisement published10. September 2026
Application deadline21. September 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Intermediate
Location
Hlévangur Faxabraut 13
Type of work
Professions
Job Tags