Landspítali
Landspítali
Landspítali

Hjúkrunarfræðingar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild

Viltu taka þátt í að byggja upp nýja geðdeild og móta framtíð réttar- og öryggisgeðþjónustu?

Við leitum að metnaðarfullum hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á geðhjúkrun og vilja taka virkan þátt í uppbyggingu nýrrar réttar- og öryggisgeðdeildar á Kleppi. Hér er spennandi tækifæri til að koma að mótun nýrrar deildar frá grunni, hafa áhrif á starfshætti og taka þátt í þróun sérhæfðrar geðheilbrigðisþjónustu. Við leitum að reynslumiklum sem og nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum og bjóðum upp á starfsþróunarár fyrir alla hjúkrunarfræðinga sem hefja störf í geðþjónustunni.

Um deildina

Um er að ræða nýja 8 rúma legudeild sem mun sinna sérhæfðri meðferð og endurhæfingu einstaklinga með alvarlegan og flókinn geðrænan vanda. Á deildinni verður lögð áhersla á einstaklingsmiðaða og batamiðaða nálgun þar sem meðferð og endurhæfing taka mið af þörfum, styrkleikum og getu hvers og eins. Meginmarkmið þjónustunnar er að styðja einstaklinga til aukinnar sjálfstæðis, bættra lífsgæða og farsællar endurkomu út í samfélagið.

Starfsemin mun byggja á öflugri þverfaglegri teymisvinnu þar sem hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í meðferð, endurhæfingu og daglegum stuðningi við sjúklinga. Sérstök áhersla verður lögð á virka þátttöku sjúklinga í eigin meðferð, góð samskipti og markvisst samstarf við aðstandendur.

Miklar og heildrænar umbætur standa nú yfir í réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala, bæði hvað varðar húsnæði, skipulag og þróun þjónustunnar. Opnun nýrrar deildar er mikilvægur liður í þeirri uppbyggingu. Hjúkrunarfræðingar sem ráðast til starfa fá tækifæri til að taka virkan þátt í að móta faglega sýn, þróa meðferðarumhverfi, innleiða nýja verkferla og byggja upp sterka liðsheild. Áhersla verður lögð á faglega þróun, þekkingarmiðlun og starfsumhverfi sem einkennist af samvinnu, öryggi og metnaði fyrir góðri þjónustu.

Gert er ráð fyrir að nýja deildin hefji starfsemi um miðjan mars 2027. Ráðningar munu hefjast fyrr til að tryggja starfsfólki markvissan undirbúning, fræðslu og þjálfun áður en starfsemin fer af stað.

Tækifæri til starfsþróunar - kjarninn í okkar starfi

Við bjóðum upp á starfsþróun og tækifæri til faglegrar sérhæfingar:

  • Reyndir hjúkrunarfræðingar og fagfólk styðja þig í daglegu starfi og faglegri þróun.

  • Sérhæfð fræðsla og þjálfun fyrir réttar- og öryggisgeðþjónustu.

  • Boðið upp á sérhæft starfsþróunarár, sérstaklega ætlað nýjum og nýútskrifuðum hjúkrunarfræðingum í geðþjónustunni. Þar fer fram fræðsla, þjálfun og fagleg handleiðsla á starfsstöð.

  • Þjálfun fyrir opnun deildar, þar sem allt starfsfólk fær tíma og stuðning til að undirbúa sig vel áður en starfsemi hefst.

  • Raunveruleg tækifæri til að byggja upp sérþekkingu og þróast í átt að öflugum leiðtoga í hjúkrun til framtíðar.

  • Starfsþróunarár fyrir nýútskrifaða hjúkrunarfræðinga á Landspitala.

Betra jafnvægi vinnu og einkalífs

  • Vinnuvika í fullu starfi er 36 stundir, og getur orðið styttri eftir samsetningu vakta.

  • Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta vinnu og einkalíf.

Starfskjör og upplýsingar

  • Starfshlutfall: 50-100% eða eftir samkomulagi

  • Vinnufyrirkomulag: Vaktavinna

  • Störfin eru laus frá: 2. janúar 2027 eða eftir samkomulagi

  • Gert er ráð fyrir að deildin hefji formlega starfsemi í mars 2027

Langar þig að taka þátt í að skapa eitthvað nýtt, þróast í starfi og hafa raunveruleg áhrif á líf fólks?

Sæktu um og vertu með frá fyrsta degi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ákveða, skipuleggja og veita hjúkrunarmeðferð í samráði við sjúklinga og bera ábyrgð á meðferð samkvæmt starfslýsingu
  • Skráning hjúkrunar í samræmi við reglur Landspítala
  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
  • Virk þátttaka í uppbyggingu og þróun hjúkrunar á nýrri geðdeild
  • Virk þátttaka í verkefnavinnu, teymis- og umbótastarfi
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt hjúkrunarleyfi
  • Áhugi á hjúkrun fólks með alvarleg geðræn einkenni
  • Reynsla af geðhjúkrun er kostur
  • Framúrskarandi samskiptahæfni, sveigjanleiki og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Frumkvæði og faglegur metnaður
  • Áhugi á þverfaglegu samstarfi og teymisvinnu
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Góð íslenskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Advertisement published16. October 2026
Application deadline5. November 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Hringbraut Landspítali , 101 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (32)
Landspítali
Hjúkrunarfræðingar á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar á bráðalyflækningadeild A2 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á fæðingarvakt
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Skrifstofumaður - Lyflækningar krabbameina
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á almenna endurhæfingardeild aldraðra L2
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarnemar - Spennandi hlutastörf með námi á gjörgæslu Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á bæklunarskurðdeild AB5 Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í meltingarteymi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í ígræðsluteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliðar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Ráðgjafar/ stuðningsfulltrúar á nýja réttar- og öryggisgeðdeild á Kleppi
Landspítali
Landspítali
Læknir - Tímabundið starf
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur í kviðarholsteymi
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G
Landspítali
Landspítali
Aðstoðardeildarstjóri hjúkrunar á nýrri réttar- og öryggisgeðdeild
Landspítali
Landspítali
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Landspítali
Landspítali
Sjúkraliði á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur á bráðaöldrunarlækningadeild Fossvogi
Landspítali
Landspítali
Deildarstjóri gæðadeildar
Landspítali
Landspítali
Teymisstjóri í aðfangaþjónustu
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Landspítali
Landspítali
Hjúkrunarfræðingur - Heimaspítali barna
Landspítali
Landspítali
Heilbrigðisgagnafræðingur - Barnaspítali Hringsins
Landspítali
Landspítali
Sérfræðilæknir í myndgreiningu
Landspítali
Landspítali
Vöru- og verkefnastjóri heilbrigðistækni hjá stafrænni framþróun
Landspítali
Landspítali
Iðjuþjálfi - Komdu að vinna með okkur í geðþjónustu
Landspítali
Landspítali
Interested in Nursing Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali
Landspítali
Interested in Medical Opportunities in Iceland? Register on our portal!
Landspítali