

Sjúkraliði á skurðlækningadeild Fossvogi
Við auglýsum eftir sjúkraliða til starfa á skurðlækningadeild B6 í Fossvogi.
Áhersla er lögð á framþróun og símenntun starfsfólks og er öllum nýliðum veitt góð einstaklingshæfð aðlögun. Unnið er í vaktavinnu og er vinnufyrirkomulag, starfshlutfall og upphaf starfa samkvæmt samkomulagi.
Skurðlækningadeild er 23 rúma deild sem þjónustar sjúklinga fjögurra sérgreina: Háls-, nef- og eyrna-, lýta-, æða- og heila- og taugaskurðlækninga. Á deildinni er mikil sérhæfing í sárameðferð og er þetta eina deildin á landinu sem sinnir alvarlegri brunaáverkum. Innan deildarinnar er hágæslueining fyrir þá sjúklinga sem þurfa stöðugt og nákvæmt eftirlit, svo sem eftir stærri skurðaðgerðir á höfði og æðum, áverka eða eftir gjörgæsludvöl.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
- Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
- Þátttaka í þróun og umbótum
- Stuðla að góðum samstarfsanda
- Íslenskt sjúkraliðaleyfi
- Jákvætt viðhorf og samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Íslenskukunnátta
Icelandic










































